Framfarir á síðunni - XHTML

Skrifað 16. apríl 2003, kl. 14:06

Í gær bætti ég við nýjum, sætum myndatökkum neðst á allar síður (og á forsíðunni). Með því að smella á W3C takkana í fætinum má sannreyna að HTML og CSS kóðinn á síðunni er kórrétt skrifaður.

Þá má nefna að ég ákvað að skrifa kóðann á síðunum samkvæmt XHTML 1.0 staðlinum, því það virðist vera eina leiðin til að tryggja að síðurnar virki á þráðlausum tækjum sem nota WAP2.0 staðalinn til að skoða vefi.

Ástæðan fyrir því að ég fer í XHTML útgáfu 1.0 en ekki 1.1, er sú að kórréttar 1.1 síður virka ekki í eldri vöfrum (t.d. eru vísanir á name="" innan síðu ekki leyfðar í XHTML 1.1) og býr til á tómt vesen með MIME-týpur og birtingu síðna í eldri vöfrum ("text/html" er ekki lengur leyfð týpa). XHTML 2.0 býr til enn fleiri og stærri vandamál. XHTML 1.0 er eina praktíska útgáfan.

Til að síðan mín sé bæði kórrétt XHTML 1.0 og virki í öllum gömlum vöfrum þá þurfti ég að hafa eftirfarandi í huga:

  • Setja auka <a name="foo"></a> fyrir gömlu vafrana, þótt ég noti annars id="foo" til að marka fyrir vísunum innan síðna (<a href="#foo">Foo</a>)
  • setja bæði xml:lang="is" og lang="is" í <html> markið.
  • ...og ýmislegt fleira smálegt sem kemur fram í kaflanum um afturvirkni í XHTML 1.0 staðlinum.

Meira þessu líkt: HTML/CSS, Um þessa síðu.


Svör frá lesendum (2)

  1. Tóró svarar:

    Eins og venjulega geri ég ráð fyrir að nýta mér visku þína (stela?) í næstu tiltekt hjá mér.

    Tek eftir að þú notar <b> en ekki <strong> eins og semantískir réttrúarmenn vilja að sé notað. Er það máttur vanans eða er strongið bara húmbúkk?

    16. apríl 2003 kl. 15:27 GMT | #

  2. Már Örlygsson svarar:

    <strong> er bara svo óþjált að skrifa - heilum 5 slögum lengra en <b>. XHTML 1.0 byggir á HTML 4.01 og því er <b> strangt til tekið "löglegt" tag, þó þeir hvetji fólk til að hætta að nota það.

    http://www.w3.org/TR/html401/present/graphics.html#h-15.2.1

    Ég er búinn að breyta öllum tilfellum af <b> í <strong> í dagbókinni minni, og ætla að prófa að halda mig við það á næstunni. Ég sé til hvernig mér líkar það.

    16. apríl 2003 kl. 16:21 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • business loans (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Hannahrl (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)