Hvað er í gangi með mar.anomy.net?
Síðurnar eru núna að taka stórtækum breytingum. Ástæðan er sú að hér fer fram vefhönnun með CSS og töflulausu HTML fyrir opnum tjöldum.
Markmið dagsins: Byggja síður sem eru aðgengilegar og þjálar í notkun á öllum vöfrum (t.d. GPRS farsímum og lófatölvum sem styðja W3C staðla). Skrifa hreint og rétt HTML. Ekkert CSS í bili.
Á næstu dögum: Fallegt og prentvænt útlit á síðurnar með hjálp CSS.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (8)
Tóró svarar:
Mmmm... þetta er notalega "retró".
Minnir á 1994: Times letur, <hr> og bakgrunnslitur sem er eiginlega of dökkur til að þægilegt sé að lesa svartan textann. Sem sagt, ekta óldís.
Bíð spenntur að sjá css fegurðina spretta fram ;)
15. apríl 2003 kl. 10:17 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Bakgrunnslitur? Ef þú sérð einhvern bakgrunnslit, þá hlýtur það að vera sjálfgefni liturinn sem vafrinn þinn er stilltur til að nota. Ég hélt að allir vafrar hefðu sjálfgefið "hvítt" sem síðubakgrunnslit.
15. apríl 2003 kl. 12:06 GMT | #
Freyr svarar:
Þetta er ferlegt. Ég bíð spenntur eftir fallegu og prentvænu útliti síðunnar með hjálp CSS.
P.S. Notar einhver GPRS?
15. apríl 2003 kl. 12:38 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Ég tók GPRS bara sem dæmi. Aðrir möguleikar eru lesvafrar fyrir blinda og fólk með athyglina á öðru en skjánum, frumstæðir textavafrar s.s. "lynx" á Linux, og fleiri.
15. apríl 2003 kl. 12:57 GMT | #
Tóró svarar:
Ég fæ fagurgrænan lit (sem Photoshop segir vera #339900). Default bakgrunnsliturinn minn er annars fölblár, örlítið off-white. (IE 6.0.28) Sönnunargögn verða send á mar@anomy.
15. apríl 2003 kl. 13:03 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Tóró, hreinsaðu cache hjá þér eða gerðu hart rílód. Þú virðist sitja uppi með löngu úrelt CSS skjal.
15. apríl 2003 kl. 13:06 GMT | #
Tóró svarar:
Aaahhh... allt annað líf!
15. apríl 2003 kl. 13:10 GMT | #
reynir svarar:
jájájá toro og már að þykjast geta ikkkvað, reynir er líka með tableless vef!!!! og það sem meira er, er reynir með nýmóðins logo-hönnun..!!! magnað, en því miður er ég ekki orðinn alveg nógu fluent í þessu til að geta gert vefinn læsan á gprs eða sinclair eða neinu svoleiðis smátölvudóti.... það kemur bara í útg. 2.
15. apríl 2003 kl. 14:26 GMT | #