Grundvallar prinsippin í friðarumræðunni

Skrifað 11. apríl 2003, kl. 11:47

Það fer óendanlega í taugarnar á mér þegar stuðningsmenn innrásarinnar í Írak afsaka sundursprengdar fjölskyldur og sakleysingja með þeim orðum að "mistök geti alltaf átt sér stað" og þetta sé fórnarkostnaður þess að frelsa Íraka/tryggja frið í heiminum/etc.

"Mistök" eru engin afsökun. Þegar herir Bandaríkjanna og Breta hófu innrásina þá voru þeir að yfirlögðu ráði að leggja líf saklausra borgara í hættu. Þeir vissu að þeir mundu drepa a.m.k. 1300 saklausar manneskjur. Að tala um mistök er marklaus afsökun.

Það er auðvelt að réttlæta "fórnarkostnað" þegar það erum ekki við sem þurfum að borga hann. Ef menn segjast tilbúnir að fórna lífi lítilla barna fyrir "æðri tilgang" stríðs, þá legg ég til að þeir íhugi að byrja á að fórna eigin dætrum og eigin sonum áður en þeir láta svokallaðan "fórnarkostnað" falla á ókunnugt fólk í öðrum heimshluta.

Hvernig getum við ætlast til að heimurinn batni ef við erum engu betri sjálf?


Meira þessu líkt: Stríð - Friður.


Svör frá lesendum (9)

  1. Matti Á. svarar:

    Hvað með þá sem hefðu látið lífið ef ekki hefði verið farið út í stríð?

    Ef þeir skipta ekki máli, villt þú þá íhuga að fórna eigin syni í hendur aftökusveita Saddams? Foreldrum þínum og vinum?

    Eða er það ásættanlegur fórnarkostnaður fyrir frið? Gleyma menn ekki þeim fórnarkostnaði í þessari jöfnu?

    Þetta mál er ekki alveg jafn einfalt og margir vilja láta.

    11. apríl 2003 kl. 12:29 GMT | #

  2. JBJ svarar:

    Né er það jafn einfalt og aðrir vilja láta.

    Hver ert þú að dæma um hvort að þyrma eigi þeim sem myndu falla fyrir aftökusveitum Saddams eða byssum Bandaríkjamanna?

    Annars hafa litlar fréttir borist af mannfalli óbreyttra borgara þar sem breskar sveitir eru staddar, þeir eru aðeins settlegri í þessu greinilega.

    Svo er nú komið upp þriðja dæmið, skálmöld ríkir um allt Írak og hundruð falla í erjum þar sem stjórnvöld eru farin frá en ekkert komið í staðinn, Bandaríkjamenn þeysa bara í gegn og skilja eftir sig blóðslóð og á eftir þeim kemur blóðbað.

    Fórnar þú þínum börnum í stað þeirra sem falla fyrir byssukúlum bandarískra unglingsstráka?

    11. apríl 2003 kl. 12:40 GMT | #

  3. Matti Á. svarar:

    Jói, ég var búinn að skrifa nokkuð ítarlegt svar en ég hætti við að setja það hér inn.

    Sé ekki alveg tilganginn. Þetta er greinilega mál sem ekki á að ræða.

    11. apríl 2003 kl. 13:08 GMT | #

  4. JBJ svarar:

    Þetta er mál sem er hlutdrægt í eðli sínu, þannig mál er sjaldnast hægt að ræða til að komast að sameiginlegri niðurstöðu.

    11. apríl 2003 kl. 13:30 GMT | #

  5. Ragnar svarar:

    Ég bendi á þessa frétt á NYTimes [!!]

    http://www.nytimes.com/2003/04/11/business/11REBU.html?ex=1050638400&en=8e3c238766503e7b&ei=5062&partner=GOOGLE

    Ein af mörgum fréttum um það hvernig vinir, ættingjar og nánir samstarfsmenn forseta USA munu græða þúsundir [!!] milljarða á stríðinu í Írak.

    Það er annars merkilegt hvernig stríðið var í upphafi háð til að bjarga USA frá "Mass destruction" í að "Liberating Iraqi People" nú þegar illa gengur að finna vopnin sem Kaninn og Bretinn seldu vini sínum Saddam á sínum tíma.

    Plottið í nýjustu seríu '24' minnir óneitanlega ansi mikið á þetta nýjasta "afrek" GWB.

    Bush er svolítið eins og Davíð. Gerir það sem honum dettur í hug án þess að nokkur komi í veg fyrir það þótt vissulega sé stigsmunur...

    12. apríl 2003 kl. 16:47 GMT | #

  6. Kari svarar:

    Her i Bandarikjunum er toluvert raett um fornarkostnad, en tha er yfirleitt verid ad raeda um hvort bandariska thjodin hafi efni a thvi ad fjarmagna stridsrekstur a thessum erfidu timum.

    13. apríl 2003 kl. 14:04 GMT | #

  7. Örvitinn: sófahershöfðingjar

    "Friðarsinnar eru í þeirri öfundsverðu stöðu að skoðun þeirra er rétt sama hvað tautar og raular. Andstæðingar þeirra (þeir sem voga sér að setja út á eitthvað af því sem friðarsinnar setja fram) eru sjálfkrafa vondir menn, kippa sér ekkert upp við dau..." Lesa meira

    13. apríl 2003 kl. 23:02 GMT | #

  8. Ragnar svarar:

    Nyjasta snilldin fra Utanrikisradherra - Bydur iroskum dreng adstod. Dreng sem missti alla utlimi og fjolskyldumedlimi i sprengjuarasum sem rikisstjorn Islands ber abyrgd a.

    Svei!

    15. apríl 2003 kl. 19:56 GMT | #

  9. Már Örlygsson: Eitthvað þarf að gera - en hvaða "eitthvað"?

    "Um daginn skrifaði ég um grundvallar prinsipp. Eins og ég bjóst við þá svaraði Matti Á stuttlega og Jói JBJ og Ragnar Torfi honum að bragði. Gaman þegar fólk glímir í dagbókinni manns. Daginn eftir skrifaði Jói ágætlega um sófahershöfðingjagrein..." Lesa meira

    17. apríl 2003 kl. 11:12 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)