Eru fagnaðarlæti marktækari en mótmæli?

Skrifað 10. apríl 2003, kl. 19:00

Strumpurinn hittir naglann á höfuðið í færslu um "hamingjusama" íraska þjóð

"Undarlegt finnst manni að sömu aðilar og tala um að mótmæli sýni ekki rétta mynd af viðhorfi þjóða (sbr. mótmælin í evrópu) álíti að nokkur þúsund manna sem fagna falli Saddam sýni einhverja betri mynd af viðhorfi alþýðunnar í Írak."

Þegar innrásarstríðið "byrjaði" þá voru bandaríkjamenn búnir að sprengja og drepa á fullu í marga daga á undan. Núna er stríðinu "lokið", þrátt fyrir að enn sé barist og ekki sjái fyrir bendan á blóðugum átökum. Hún er skrýtin þessi nýja skilgreining á stríði og friði...

Skv. Iraqbodycount.com þá hafa á bilinu 1140 - 1376 óbreittir borgarar dáið í innrásinni hingað til. Þá eru ótaldir þær þúsundir sem hafa særst, og þúsundir eða tugþúsundir hermanna sem hafa fallið. Munið eftir snjóflóðunum á Flateyri (20 látnir) og Súðavík (14 látnir)? Ímyndið ykkur að stórt snjóflóð félli á Akureyri og tæki 1200-1300 manns með sér.

Skv. Robert Fisk hafa margir fréttamenn látið lífið við grunsamlegar aðstæður (að því er hann vill meina).

Annars gluggaði ég í dag á pistla Christopher Allbritton sem er líklega einn af fáum fréttamönnum í Írak í dag sem er ekki vandlega ritskoðaður af hermálayfirvöldum annars hvors stríðsaðilans. Hann er staddur í Kúrdistan og lýsir fölskvalausum fögnuði Kúrdanna sem hafa lengi barist fyrir sjálfsstæði sína héraðs.

Ég vona að veldi Saddams sé fallið og ég vona að Bandaríkjamenn og Bretar hundskist heim til sín eins fljótt og auðið er. Megi pöddur bögga Bush og Blair.


Meira þessu líkt: Stríð - Friður.


Svör frá lesendum (7)

  1. Svansson.net: Umhugsunarefni

    "Skelli þessu hérna, svona í og með til að prófa trabantinn" Lesa meira

    10. apríl 2003 kl. 19:50 GMT | #

  2. Svansson.net svarar:

    Kúl, trackback virkar flott - þarf að fá mér svona um leið og ég set upp kommentakerfi;-)

    10. apríl 2003 kl. 19:51 GMT | #

  3. Már Örlygsson svarar:

    Mig grunar að orðræðan um að stríðinu sé lokið sé markvisst sett fram til að þagga niður í friðarsinnum. Nú er hægt að segja "nú er stríðinu lokið, hverju eruð þið að mótmæla?" sama þótt að stríðið sé í raun og veru enn í fullum gangi. Áhrif í þessa veru mátti sjá í dag þegar meira að segja skipleggjendur friðarmótmæla sem munu fara fram á morgun tóku sig til og reyndu að aflýsa mótmælunum því það væri ekki lengur stríð! Sem betur fer ætla allir samt að mæta á morgun.

    (P.S. Já trackback er sneddí.)

    10. apríl 2003 kl. 20:14 GMT | #

  4. Matti Á. svarar:

    Hver talar um að stríðinu sé lokið? Ég hef eiginlega misst af þeirri umræðu.

    10. apríl 2003 kl. 20:55 GMT | #

  5. Már Örlygsson svarar:

    Allir og enginn. Enginn heldur því beinlínis fram að stríðinu sé lokið, en á sama tíma tala samt allir eins og það séu bara einhver formsatriði eftir. Í fréttunum er japlað á frösum á borð við "leiknum er lokið" etc. etc..

    10. apríl 2003 kl. 21:07 GMT | #

  6. Matti Á. svarar:

    Sú umræða sem ég hef orðið var við snýst einmitt öll um að Saddam hafi verið bolað frá en stríðinu sé alls ekki lokið.

    En svona geta menn séð sömu hlutina á mismunandi hátt geri ég ráð fyrir.

    Eini (merkilegi) maðurinn sem ég man eftir að hafi talað um að "leiknum væri lokið" er sendiherra Írak hjá Sameinuðu Þjóðunum. Gætu svosem vel verið að fleiri hafi lýst því yfir.

    10. apríl 2003 kl. 21:14 GMT | #

  7. Már Örlygsson svarar:

    Þetta er auðvitað alveg rétt hjá þér Matti. Þessi hugleiðing mín var faktískt ekki meint bókstaflega, heldur meira svona til að varpa upp svipmynd af stöðunni. Heimsbyggðin óskar sér einskis heitar en að stríðinu sé lokið og ég held að við höfum því öll (sem samfélag) ómeðvitaða tilhneigingu til telja sjálfum okkur trú um að svo sé. Þessi færsla er mitt framlag til að tryggja að við gleymum ekki staðreyndunum.

    10. apríl 2003 kl. 21:22 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • business loans (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Hannahrl (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)