Maí og júní: útivinna eða foreldravinna?

Skrifað 9. apríl 2003, kl. 15:28

Stína er að fara að byrja í tveggja mánaða vinnutörn. Kennsla á námskeiði, búningasaumur, hönnun fyrir leikverk í Borgarleikhúsinu o.fl. Nú er um tvennt að velja, að ég fækki mínum verkefnum niður undir núll og taki að mér að vera með strákinn, eða reyna að finna einhverja pössun á meðan mesta vinnutörnin stendur yfir.

Það sökkar vissulega dáldið mikið að hafa engar ömmur eða afa eða svoleiðis ættingja í Reykjavík. Það væri svooo næs að geta níðst á þegar svona kemur upp.

Mér finnst það samt mjög spennandi tilhugsun að sjá algjörlega um strákinn þennan tíma, en ég veit ekki hvort mér tekst að sannfæra Hugsmiðjuna um að þeir þurfi ekki á mér að halda í tvo heila mánuði.

Hvað gera bændur?


Meira þessu líkt: Logi Garpur.


Svör frá lesendum (3)

  1. Ágúst svarar:

    Betri spurning er: hvað gerir femínistinn Már? :þ

    9. apríl 2003 kl. 16:12 GMT | #

  2. Jósi svarar:

    Ja, ef bændur eru sannir darwinistar þá láta þeir drenginn ganga (eða skríða) sjálfala. Ef hann sörvævar ekki þá er hann ekki nógu fit...

    Svo er hægt að taka bara að sér verkefni sem hægt er að vinna heima á milli bleyjuskipta. Eða er það að sjá um Loga Garp 150% vinna?

    10. apríl 2003 kl. 09:31 GMT | #

  3. Már Örlygsson svarar:

    Það er lúmskt mikil vinna að sjá um strákinn. Samt er ekkert ómögulegt í þeim efnum, en þó ætla ég að reyna að takmarka verkefnin sem ég tek að mér sem mest.

    10. apríl 2003 kl. 11:04 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)