Brosað á kostnað náungans?
Er það bara ég eða er myndasíða Friðbjörns Orra alveg ótúrúlega fyndin? Mér dettur einhvern veginn í hug montmyndasíðan hans Björns[-BíBí-] sem mér fannst alltaf svolítið brosleg. Friðbjörn er þó miklu fyndnari.
Þessar myndasíður eru þó mjög einlægar á sinn hátt, og af því ég er mjög hrifinn af allri einlægni, þá fíla ég þær.
Meira þessu líkt: Ljósmyndun, Útgáfa.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (7)
Svansson.net svarar:
Ekki heldur gleyma frægum link, myndir af mér, hjá http://www.hi.is/~hannesgi/safn/myndir1.html . Sérstaklega finnst mér neðsta myndin skemmtileg.
Ég efast hins vegar um að mér finnist þetta jafnskemmtilegt og Má. Ég held að ég gæti hins vegar skemmt mér jafnkonunglega yfir sambærilegu myndasafni hjá brjáluðum umhverfisverndar- ellegar friðarsinnum. Það er sömuleiðis bömmer að líklega eru engin sambærilega myndasöfn til af forystumönnum verkalýðshreyfinga í Bretlandi frá kaldastríðsárunum, þar var víst e-r kostulegasta slagsmálastemming sem sögur fara af.
9. apríl 2003 kl. 12:49 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Það sem mér finnst fyndið við þetta er "name-dropping" elementið í báðum myndaseríunum. Hvorug myndaserían nær á nokkurn hátt að vera sjálfsævisöguleg, enda er það ekki markmiðið með þeim, en þessi þörf fyrir svona mont-myndasíður segir samt ýmislegt um gildismat og sjálfsmynd viðkomandi manns. "Einlægnin" sem ég sé í þessu er í raun ómeðvituð.
9. apríl 2003 kl. 13:20 GMT | #
Ágúst svarar:
Persónulega finnst mér ekkert að myndasíðunni hans Orra. Hannes Hólmsteinn á hinsvegar hrós skilið fyrir sína myndasíðu, þó það væri ekki fyrir annað en þessa "einlægni". Hann einfaldlega er að sýna líf sitt í myndum (og stuttu máli) á þann hátt sem hann vill rifja upp. Stefán Einar(.com) er líka með smá myndasafn þar sem hann kemur á framfæri hvaða mann hann vill sýna umheiminum að hann sé.
Mér finnst þetta allt í lagi. Ef ég hitti einhvern tímann nóbelsverðlaunahafa og á mynd af því, ætla ég að setja það á netið. Líka ef ég Tómas Friedman, þá fer sú á forsíðuna ;)
Takið líka eftir því, þegar þið flettið myndasíðunum í ævisögum, þá er það mjög gjarnan "þarna hitti ég..." myndir.
Einsog ég segi, mér finnst þetta í góðu lagi og myndasafn Orra "persónulegra" eftir að hann bætti inn myndum af félögum sínum.
Ég er líka ósammála Má um að "einlægnin" sé ómeðvituð, ég held hún sé fullkomlega meðvituð, a.m.k. hjá Orra.
9. apríl 2003 kl. 15:08 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Mér finnst ekkert "að" báðum þessum síðum. Þær fá mig bara til að brosa. Ég hvet sem flesta til að setja upp svona síður, alveg eins og ég hvet sem flesta til að setja upp vefsíður með myndum af kettinum sínum. Til þess er veraldarvefurinn að setja stöff á hann.
9. apríl 2003 kl. 15:13 GMT | #
Salvör svarar:
Brjálað fyndið. Jafnvel ennþá fyndnara þegar ég las á kommentunum hjá þér að þetta virðist ekki vera grín og írónía. Það hvarflaði ekki að mér. Ótrúleg snilld:-)
Friðbjörn þarf bara að þróa þetta áfram, svona eins og með "Ég með Stínu frænku" dæmið (sjá http://www.hi.is/~hannesgi/safn/myndir1.html ) til að sýna að hann sé human og hafi einhvern tíma átt fjölskyldu. Svo kannski einhverjar fleiri innhverfari og sjálfhverfari myndir eins og t.d. eins og mynd af "Ég undir málverki af mér að lesa grein í blaði eftir mig og skoða bloggið mitt á fartölvunni minni". Það er upplagt að bæta því inn.
En lifi fjölbreytileikinn og megum við sum snúast um aðra og sum að snúast bara um sjálfan sig. Svoleiðis sjálfsnúningur verður náttúrulega með minni radíus:-)
9. apríl 2003 kl. 16:21 GMT | #
Einar Örn svarar:
Þetta er alger snilld!!!
Ætli hann eigi vinstrisinnaða vini, eða vilji bara ekki sýna þá? :-)
Annars finnt mér þetta mjög skemmtilegt myndaalbúm: http://arni.hamstur.is/?t=album&aid=156 Honum vantar bara að halda áfram með þetta.
9. apríl 2003 kl. 23:04 GMT | #
Ragnar svarar:
Már, þakka þér fyrir þessa ágætu skemmtun. Ætti kannski að þakka öllum hlutaðeigandi en þar sem tilgangurinn með myndbirtingunum virðist ekki vera afþreying fyrir aðra heldur meira einhvers konar misskilin upphafning (???) á sjálfum sér sé ég ekki ástæðu til þess. En fólk á auðvitað að nota internetið, sammála þér Már með það, það er gott að brosa
10. apríl 2003 kl. 18:07 GMT | #