MT: ég vil losna við "index.html"

Skrifað 7. apríl 2003, kl. 02:31

Ég sendi hjálparbeiðni inn á Movable Type spjallþræðina um daginn af því ég vil losna við "index.html" af vefslóðunum mínum. Því miður þá fékk ég engin svör.

Ég vil að allar vefslóðirnar mínar endi á "/". Ég vil að MT búi til index.html skrá í viðkomandi möppu, en ég vil ekki að "index" skráarnafnið sé birt aftast í vefslóðinni.

Ég er í dag að nota Regex kerfisviðbótina til að fjarlægja "index.html" partinn af öllum slóðum, en það dugir skammt því Movable Type kerfið sjálft sendir frá sér hráar vefslóðir með "index.html" bæði með Trackback skeytum og þegar einhver skrifar comment við færslurnar.

Pirr


Meira þessu líkt: Movable Type, Varanleiki & URL, Útgáfa.


Svör frá lesendum (3)

  1. Kristján Rúnar svarar:

    Það er hægt að losna við index.html þegar einhver skrifar ummæli með því að bæta eftirfarandi við innsláttarformið:

    <input type="hidden" name="static" value="<$MTEntryLink archive_type="Individual" regex="noindex" $>" />

    þar sem "noindex" hefur áður verið skilgreint með viðeigandi hætti.

    Trackback skeytin virðast vera erfiðari viðfangs.

    27. maí 2003 kl. 09:11 GMT | #

  2. Már Örlygsson svarar:

    Já ég rakst á þessar upplýsingar um "static" breytuna í komment forminu í gærkvöldi og var búinn að laga þetta þá. (Þú hefur kannski tekið eftir því hvað það kom flott vefslóð þegar þú sendir svarið :-)

    En það er samt slæmt að MT bætir alltaf #[auðkennisnúmer-svarsins] aftan á vefslóðina sem ég gef upp, sem er slæmt vegna þess að ef ég vil nota XHTML id="" stillinguna í stað gamla úrelta <a name=""></a> kóðans, þá er #[númer] ekki löglegt id gildi því id verða að byrja á bókstaf en ekki tölu.

    Ég vildi óska þess að MT gæfi mér fullkomið vald yfir vefslóðinni sem verður til þegar lesendur senda svör.

    27. maí 2003 kl. 09:44 GMT | #

  3. Dagbók Kristjáns og Stellu: Entry.pm hakkað

    "Við Már höfum það sameiginlega áhugamál að vilja losna við index.html úr vefslóðum sem MovableType sendir frá sér. Þar sem..." Lesa meira

    30. maí 2003 kl. 23:37 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)