Ég mæli með RSS 2.0
Ég hvet alla bloggara til að uppfæra RSS skjölin sín í útgáfu 2.0. Movable Type notendur geta afritað eftirfarandi RSS template kóða sem gefur einfalt og hreint RSS 2.0 skjal: (Lagfært skv. tillögu Tryggva)
Þeir sem eru meiri nördar geta svo notað namespace fítusana sem eru hluti af útgáfu 2.0 til að setja allan fjandann inn í RSSið sitt.
RSS 2.0 er betra en RSS 1.0 af því að:
- RSS 1.0 er ósamhæft við allar eldri útgáfur af RSS (0.91, 0.92, etc.)
- RSS 1.0 er RDF samhæft sem þýðir að kóðinn er stór, flæktur og illlæsilegur fyrir venjulegt fólk.
- RSS 2.0 er hvorki A né B en hefur samt langflesta kostina sem RSS 1.0 átti að hafa.
Meira þessu líkt: HTML/CSS, Movable Type, Útgáfa.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (6)
Tryggvi R. Jónsson svarar:
Annars algert smekksatriði en ég myndi frekar nota MTEntryPermalink í link frekar en MTEntryLink. Það sendir mann á réttan stað ef preferred archive týpa er eitthvað annað en individual... og með encode_xml=1 parametranum. Það tryggir að þeir sem koma inn í gegnum RSS yfirlit detta beint inn á þá færslu sem þeir vilja sjá óháð því hvaða archive-týpu MT er stillt á.
7. apríl 2003 kl. 10:01 GMT | #
Vefdagbók Tryggva: RSS 2.0
7. apríl 2003 kl. 10:04 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Takk fyrir ábendinguna Tryggvi. Ég breytti sniðmátskóðanum samkvæmt því sem þú lagðir til.
7. apríl 2003 kl. 11:22 GMT | #
Elly svarar:
i dont understand :) u have to make an english version :)
9. apríl 2003 kl. 02:08 GMT | #
Már Örlygsson: Góð ráð fyrir nýja Movable Type notendur
24. maí 2003 kl. 13:21 GMT | #
Jósi svarar:
Ef að maður notar dirify-aðar útgáfur af vefslóðunum sínum (eins og ég og Már gerum báðir) þá er gott að nota stripFile trikkið hans Más ( http://mar.anomy.net/entry/2003/06/22/17.15.00/ ) til að taka index.html út úr permalinkunum.
Setjið <MTAddRegex name="stripFile">s|/index.[^/]+$|/|g</MTAddRegex> framarlega í RSS template-ið og bætið regex="stripFile" inn í MTEntryPermalink markið.
14. mars 2004 kl. 22:55 GMT | #