Vídeó á Linux
Freyr skrifar um reynslu sína af vídeóspilun á Linux. Fróðlegt. Ég er sjálfur að gera tilraunir með að spila DVD og DivX myndir á 400MHz Pentium II Linux dollunni sem situr í stofunni heima hjá mér. Mín reynsla af mplayer, sem Freyr segist fíla, er sú að hann neitar að láta vídeómyndina fylla skjáinn. Kannski er það eitthvað stillingaratriði sem er ekki enn búinn að finna út úr? Logi mælir með xine. Ég á eftir að prófa það forrit.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (9)
Hrafnkell svarar:
Ég hef meiri reynslu af xine og það er fínt. Bróðir minn sver og sárt við leggur að mplayer stjórni.
Færðu villuboð þegar þú reynir að skipta í fullscreen mode?
3. apríl 2003 kl. 15:57 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Nei ekki villuboð, heldur heldur vídeóið áfram að keyra pínulítið á miðjum skjánum.
Sama gerist þegar ég vel "Double Size". Þá stækkar vídeó-glugginn en vídeómyndin sjálf keyrir óbreittri stærð í miðjum glugganum.
3. apríl 2003 kl. 16:09 GMT | #
Freyr svarar:
Já, ég lenti einmitt í þessu á lappanum að hann scale-aði ekki myndina þegar glugginn er stækkaður/settur í fullscreen. Það virkar hins vegar fínt á vinnuvélinni og heimavélinni. Ég gat þó gert það með að þvinga opengl afspilun: $ mplayer -vo gl mynd.asf ...en í því tilfelli varð afspilunin svo hægvirk að það var óáhorfanlegt.
Sennilega hefur þetta eitthvað með tegund skjákorta og/eða reklana sem þeim fylgja, en hef ekki skoðað þetta nógu vel til að geta staðhæft neitt um það.
Ég gerði preliminary prófun á xine og hann spilaði ekki umrædda ASF. Var ekki búinn að skoða hvort hægt væri að ná í codec fyrir hann.
3. apríl 2003 kl. 16:26 GMT | #
Hrafnkell svarar:
Kannski er ekki stuðningur við hardware scaling í skjákortinu þínu? Ef þú skipar xdpyinfo úr skel (keyrand í X), er þá XVideo ein af þeim "extensions" sem er listuð. Ef þú skipar xvinfo, færðu þá upplýsingar um eitthvað?
3. apríl 2003 kl. 16:55 GMT | #
Freyr svarar:
XVideo er einn af extensions á lappanum hjá mér, samt scale-ar hann ekki.
3. apríl 2003 kl. 17:45 GMT | #
Freyr svarar:
Reyndar var ég að taka eftir því að xvinfo segir "no adaptors present" á lappanum en gefur svaka rumsu af upplýsingum á vinnuvélinni.
3. apríl 2003 kl. 17:49 GMT | #
Tóró svarar:
Ég veit ekkert um þessi spilunarforrit en fagna því að 400 MHz dollan sé komin heim í stofu og farin að malla á sínu nýja heimili ;)
3. apríl 2003 kl. 21:31 GMT | #
Sigga Sif svarar:
Ég hef spilað dvd diska í báðum. Ég lenti oft í því að xine þóttist ekki geta spilað diskana. Þess vegna náði ég í mplayer og hann virkar fínt. Vandamálið er að hann segir að það sé ekki Xvideo stuðningur hjá mér og þess vegna verða myndirnar ekki í breiðtjaldsformi heldur sjónvarpsformi (sem þýðir að fólk er ógeðslega asnalega teygt). Ég gat lagað það með að zooma á myndina, en þá verður hún svolítið þyngri í keyrslu.
Fullscreen modeinn virkar hins vegar fínt núna, ég lenti í byrjun í því að myndin fraus þegar ég setti fullscreen á, en það vandamál hvarf bara án þess að ég hefði gert neitt meðvitað til að laga það.
Mér finnst samt mjög asnalegt að það sé ekki Xvideo stuðningur á tölvunni minni því hún er glæný. Kannski skiptir það engu máli, en ég var eiginlega að vona að Linux væri að bulla ;-)
4. apríl 2003 kl. 06:37 GMT | #
Hrafnkell svarar:
Sigga Sif, getur ekki bara verið að vélin þín hafi vélbúnað sem ekki hefur verið gefinn út skjölun fyrir þannig að ómögulegt hefur verið að gefa út rekla fyrir skjákortið þitt sem kunna eitthvað annað en einföldustu hluti?
Ef skjákortið hjá þér er NVidia kort þá geturðu sótt rekla frá http://www.nvidia.com/content/drivers/drivers.asp. Þá færðu líka góða þrívíddarhröðlun en verður að lifa við að rekillinn hefur ekki opin kóða.
Á http://www.nvidia.com/content/drivers/drivers.asp fann ég upplýsingar um að S3 Savage, Trident og Neomagic skjákort virki illa í XVideo.
4. apríl 2003 kl. 10:53 GMT | #