Helvítis krækiberið ég

Skrifað 2. apríl 2003, kl. 19:23

Bjarni er femínisti á svipuðum forsendum og ég. Eins og hann þá hef ég hingað til átt dáldið erfitt með að samsama mér með þeim sjónarmiðum sem hafa verið hvað háværust í íslenska femínistaheiminum (t.d. hér og hér). Sömuleiðis er leiðinlegt að vera alltaf eins og krækiber í helvíti þegar maður opnar munninn um eitthvað á Femínistapóstlistanum af því maður er ekki af "réttu" kyni. Vissir karlfordómar virðast vera djúpt greyptir inn í femínistakúltúrinn, en ég held að það sé að lagast og við Bjarni (og fleiri "ungir karlar") þrjóskumst við að taka þátt í umræðunni, af því við trúum því að jafnrétti sé mikilvægt.

Femínistinn Siggi Pönk skrifar í dag frábæran pistil um samspil ótta og vanlíðunar og ofbeldis. Eins og Bjarni bendir á þá er það einmitt þessi ótti og vanlíðan það sem drífur áfram ofbeldi (karla á konum t.d.). Góður femínismi ætti því að huga að jafnréttisstöðu (og vellíðan) karla jafnt sem kvenna því virðing og jafnrétti kvenna og karla hlýtur að byggjast að stórum hluta á sameiginlegri vellíðan okkar allra.

Svo fannst mér athyglivert að heyra í fréttunum um daginn, að nýlegar rannsóknir á meðalaldri kynjanna á íslandi (og norður-/vesturlöndum almennt) sýndu að meðalaldur karla hefur verið að hækka mun hraðar en meðalaldur kvenna. Þetta þykir benda víst til þess að líffræðileg ævilengd kynjanna sé jafnari en áður var talið. Mér dettur í hug að auknar heilbrigðis- og öryggiskröfur í dæmigerðum karla starfsgreinum, og aukin atvinnuþátttaka kvenna séu hluti af ástæðunum. Þetta fékk mig til að velta fyrir mér hvort styttri meðalævi karla sé ekki dæmi um mismun á félagsaðstæðum kynjanna, og þannig eitthvað sem mætti skoða í femínísku/jafnréttis samhengi? Það er jú staðreynd að það eru ákveðinn félagslegur þrýstingur á karla til að vinna gróf og hættuleg störf, og taka óþarfa áhættur í tíma og ótíma.

Staða karla inn á heimilunum er líka atriði sem er sjaldan skoðað, en getur skipt mjög miklu máli í umræðunni um stöðu kvenna í pólitískum valdastöðum og á vinnumarkaðnum.

Mér lýst almennt þrusuvel á stefnuskrá Femínistafélagsins, þó mér finnist ákveðin atriði í lið tvö ("Að vinna gegn hverskonar birtingarmyndum kynjamisréttis. Þar má nefna klámvæðinguna, ágengar, lítilsvirðandi auglýsingar, ofbeldi, mansal og vændi. ") bera dálítinn keim af "annarar kynslóðar" femínisma. Umræður síðustu daga á Femínistapóstlistanum, um klámvæðingu og "lítilsvirðandi auglýsingar", hafa nefnilega berlega sýnt fram á hvað það getur verið þunn lína milli hlutlægrar gagnrýni og pjúrítanískra nornaveiða.

Í aðra höndina er í gangi það sem mér finnast vera skynsamleg gagnrýni, eins og t.d. tilmælin til Flugleiða, en á sama tíma virðist sumar raddirnar drifnar áfram af þeim sjónarmiðum að allar birtingarmyndir kynlífs og frygðar (sérstaklega ef konur eiga í hlut) séu á einhvern hátt and-femínískar og vondar. Ég er ekki tilbúinn að skrifa undir slíka einföldun, en skrifaði glaður undir tilmælin til Flugleiða.


Meira þessu líkt: Femínismi.


Svör frá lesendum (15)

  1. Strumpurinn svarar:

    Bara forvitni. Teljið þið Bjarni jafnréttissinnaða karlmenn vera feminsma (ég geri mér grein fyrir að annar getur ekki svarað fyrir hinn)?

    Núna tel ég mig mikinn og harðan jafnréttissinna en mundi aldrei telja mig feminisma. Persónulega skilgreini ég feminisma sem stefnu sem reynir að koma á jafnrétti á þeim sviðum þar sem það hallar á konur. Þ.e. hægt er að vera bæði jafnréttissinni og feminsti, en ef þú ert annað ert þú ekki endilega hitt.

    Bara mjög óljós pæling.

    Strumpakveðjur :)

    2. apríl 2003 kl. 19:32 GMT | #

  2. Már Örlygsson svarar:

    Ég held að maður geti verið bæði femínisti og jafnréttissinni, og í sinni víðustu mynd sé femínismi jafnréttisbarátta allra (sjá grein um "þriðju kynslóðar femínisma").

    Allavega held ég að í mörgum tilfellum sé munurinn á þessu tvennu svo lítill að það taki ekki að gera sér rellu yfir honum, og það sé miklu sniðugra að segja bara "já, já, ég er femínisti" og fást ekki um smáatriðin, ef það getur ýtt umræðunni áfram, í stað þess að halda henni fastri ofan í einhverjum heimskum drullupolli.

    Ég held að 95% kvennana í Femínistafélaginu séu ekkert á því að "allir karlar séu vondir" eða að velferð og sjónarmið karla "skipti engu máli", heldur hugsi þær þetta aðallega sem nútímalega kynjamiðaða jafnréttispólitík. Auðvitað eru sjónarmiðin jafn misjöfn og fólkið er margt, og inn á milli leynast harðir Dworkin- og MacKinnonistar sem virðast líta á femínisma sem kynjabaráttu (!) frekar en friðsamlegan díalóg milli kynjanna. Sá hópur er oft mjög hávær, en virðist sem betur fer vera í miklum, miklum minnihluta í félaginu.

    Þegar ég segist vera femínisti þýðir það að ég vil að staða kvenna sé bætt á þeim sviðum þar sem hallar á þær. Það útilokar ekki að ég vilji líka berjast fyrir bættri stöðu Karla, og femínisminn getur jafnvel verið ágætur umræðuvettvangur til að heyja þá baráttu.

    Þannig lítur þetta alla vega út í mínum augum.

    2. apríl 2003 kl. 19:51 GMT | #

  3. Geir svarar:

    Pop quiz til karlkyns femínista (eða einhvers sem telur sig hafa vitneskju um álit meirihluta einstaklinga í þeim hópi):

    Á að bannað vændi? Kaup og/eða sölu?

    Ég þarf bara já eða nei því ég þekki rök beggja sjónarmiða.

    2. apríl 2003 kl. 19:58 GMT | #

  4. Már Örlygsson svarar:

    Ég get bara svarað fyrir mig sjálfan: Ég veit það ekki. Hef ekki gert upp við mig hvað "á" að gera, en sem (vinstri-)frjálshyggjusinni þá hef ég eðlislæga tilhneigingu til vilja skoða fyrst lausnir sem kalla ekki á "boð og bönn" af hálfu löggjafarvaldsins, og reyna að greina á milli sjúkdómseinkenna annars vegar og raunverulegra orsaka samfélagslegra vandamála hins vegar.

    2. apríl 2003 kl. 20:07 GMT | #

  5. Zato svarar:

    Ég hata "femenista" jafn mikið "sjóvinista" það eru bara hálvitar á sitthvorum endnum.

    JAFNRÉTTI, er það sem málið á að snúast um, ég þori að veðja að mörgum af þessum "femenistum" væri drullu sama ef það kæmi fram nakin karlmaður í aulýsingu og hreint út sagt þá væri mér líka alveg sama, afhverju ætti mér þá ekki að vera skít sama þótt að kona komi nakin fram ??????

    Mér finnst nekt bara ekkert vond ! Mér finnst mannskepnan falleg og hvers vegna ætti það að vera niðurlæging að koma fram nakin hvort sem þú ert karl eða kona ???

    Þeir meiga fara í fúlan pitt sem, segja að annað kynið sé gáfaðra, betra, eða eigi eitthvað meira skilið en hitt. Jafnvægi og jafnrétti er það sem á að "blíva".

    2. apríl 2003 kl. 20:31 GMT | #

  6. Már Örlygsson svarar:

    Zato: ef þú værir skráður á femínistapóstlistann og hefðir fylgst með umræðunum þar þá vissir þú að þessi ofurþrönga skilgreining þín á femínisma og femínistum gildir bara um hverfandi hluta þeirra sem vilja kalla sig femínista.

    Allir femínistarnir sem falla ekki í þennan þrönga öfgahóp sem þú vísar til yrðu ógeðslega fúlir út í að vera grúppaðir sem öfgalið og þú hefðir lent í tveggja-daga flamefest við fólk sem þú ert beisikklí 100% sammála.

    Svona flamefest eru búin að eiga sér stað aftur og aftur og aftur á listanum undanfarið. Fólk (sérstaklega fúlir "ungir karlar") virðist ekki fatta að maður þarf að passa sig að beita alhæfingunum sínum ógeðslega varlega (eða bara sleppa þeim alveg), sérstaklega í þessum tilfinningaakri sem kynjaumræðan er, og þegar um ræðir jafn fjölbreittan skoðanahóp og femínistar eru.

    :-)

    2. apríl 2003 kl. 21:48 GMT | #

  7. Strumpurinn svarar:

    Ég vildi bara taka það fram ef einhver misskilningur hefur orðið á því sem ég skrifaði (sýnist það). Þá vil ég meina að hægt sé að vera bæði Jafnréttissinni og feministi. En ef þú ert annað þá þarftu ekki endilega að vera hitt.

    Og ég hafna því algjörlega að feminismi geti verið samheiti yfir jafnréttishyggju. Feminismi sem stefna byggir að öllu leyti á því að láta konur ná jafnrétti þar sem það hallar á konur. Fólk sem aðhyllist jafnrétti allra og berst jafnt fyrir því á öllum hliðum er jafnréttissinnar, það getur einnig verið feministar, en umfram allt er það jafnréttissinnar.

    Ef að "þriðja kynslóð feminista" álítur að þær/þeir séu að berjast jafnt fyrir alla, þá eru þær/þeir búin að þróast yfir í Jafnréttissinna.

    Strumpakveðjur :)

    2. apríl 2003 kl. 23:28 GMT | #

  8. Unnur svarar:

    Ég held að feministi sé af mörgum notað í sömu merkingu og jafnréttissinni. Hvað mig persónulega varðar þá veit ég vel að karlar búa líka við ójafnrétti á ýmsum sviðum en hinsvegar skil ég þau vandamál sem konur sérstaklega eiga við mun betur en karlavandamálin og sé ekkert athugavert við það að ég einbeiti mér að þeim atriðum sem ég hef grundvöll til að skilja í von um að það skili okkur betri heim.

    En auðvitað er orðið feministi líka notað af öfgaliði sem vill helst kveikja í öllum karlmönnum og öllu kynferðislegu. Það falla sem betur fer fáir í þann hóp.

    3. apríl 2003 kl. 10:18 GMT | #

  9. Bragi svarar:

    Ég held að þessi umræða sé kolamoli og það að kalla sig feminista sé erfitt af ýmsum ástæðum. Ég held að þetta sé hjá sumum afleiðing af því að vilja ekki láta kenna sig við hóp sem þeim líkar ekki við. Svona svipað og að vera í kór þar sem aðeins tveir eru rammfalskir og það eru einmitt þeir sem syngja hæst. Maður verður einhvern veginn ekki stoltur af því að vera hluti af þeim kór. Hvað femínista á Íslandi varðar eru þeir ennþá brenndir af bríetarliðinu sem gjörsamlega skemmdi fyrir hinum og kom kvenfrelsisumræðunni neðst í skjalabunkann.Þetta gætu verið þærsemsyngja falskt í umræðunni. Vona að þessi samtök verði eitthvað betri í verki. Byrjar samt ekki vel með einhverjum siðferðislegum þrýstingi á fyrirtæki í stað þess að eyða kröftunum í hið raunverulega vandamál.

    3. apríl 2003 kl. 12:30 GMT | #

  10. kiza svarar:

    Ég held að við komumst ekki langt í að skapa betri heim ef konur eiga að einbeita sér að "konumálum" og karlar að "karlamálum" Með því erum við strax búin að mismuna kynjunum, right?

    3. apríl 2003 kl. 15:17 GMT | #

  11. Jósi: Ég er maskúlínisti

    "TITLE: Ég er maskúlínisti URL: http://josi.klaki.net/dagbok/archives/000114.html IP: 194.105.253.6 BLOG NAME: Jósi DATE: 04/03/2003 03:48:09 PM" Lesa meira

    3. apríl 2003 kl. 15:48 GMT | #

  12. Andri svarar:

    Ég held að ég sé líklega femínisti, (þegar ég er ekki upptekinn við að vera svín) og í mínu áliti þá er það algert bull að banna vændi, klám, erótík, kynlíf af ýmsri og í áliti sumra ógeðfelldri mynd... Held það þurfi bara að hjálpa háværu gamladags femínistunum að fatta að þær búa ennþá á vitlausri öld.

    Vel getur verð að það væri gott að hafa stjórn á þessum atvinnugreinum/athöfnum, en þá þarf að ákveða hver á að fylgjast með og hvernig, og vonandi þannig að það takmarki frelsi ekki um of...

    Ég ætla amk að skrá mig þarna og skipta mér af þessu... ;)

    3. apríl 2003 kl. 17:39 GMT | #

  13. Unnur svarar:

    Ég meinti ekki að ég hefði ekki áhuga á karlamálum (pun intended) eða að ég vildi aðskilja þetta tvennt. Ég meinti bara að mér þætti auðveldara að tala um það sem ég virkilega skil og styðja svo við hina sem hafa góðan málstað og tala um hlutina sem ég, t.d. sem verandi ekki karlmaður, kannski skil ekki jafnvel. Soldið eins og húsmæðurnar sem mæta á gaypride til að sýna stuðning og afstöðu en eru ekki endilega sjálfar alltaf haldandi fyrirlestra um hvað það sé erfitt að vera leðurhommi... En svona er víst heimurinn, fullur af fólki sem hatar mig fyrir að vera feministi og fullur af fólki sem hatar mig fyrir að vera ekki nógu góður feministi. Samt hafa hvorki skoðanir mínar né ég breyst.

    3. apríl 2003 kl. 23:18 GMT | #

  14. hörður svarar:

    Hin svokallaða þeóría um "jafnrétti kynjanna" er nákvæmlega það, þeóría, og á sér enga stoð í raunveruleikanum. Ég veit ekki til þess að það sé til neitt jafnrétti meðal karla. Né heldur að það sé til neitt jafnrétti á meðal kvenna. Hvernig í ósköpunum er þá hægt að ætlast til þess að það sé eitthvað jafnrétti milli karla og kvenna. Ég minnist þess ekki að eftir að móðir mín fæddi mig í þennan heim, hafi fæðingarlæknirinn skyndilega birst með undirritað skjal þar sem því hafi verið lofað að lífið yrði sanngjarnt. Lífið er ekki sanngjarnt og allir menn í þessum heimi njóta ekki jafnréttis, hafa alrei notið jafnréttis og munu aldrei njóta jafnréttis. Fólk er metið og dæmt og kemst eða kemst ekki áfram í þessum heimi af ýmsum ástæðum og jafnrétti kemur þar hvergi nálægt. Sumt fólk er mikils metið vegna þess að það er gáfað eða fallegt eða hávaxið eða duglegt, á meðan annað er niðurlægt vegna þess að það er heimskt eða ljótt eða feitt osfr. Er eitthvað jafnrétti í því? Getur heimsk manneskja eitthvað gert í því að hún er heimsk? Er það ljótum einstaklingi að kenna að hann er ljótur? Ég þykist vera nokkuð viss um það að Kate Moss og Cindy Crawford eru töluvert launahærri en meðal leikskólakennari, á sama tíma er ég nokkð sannfærður um að flestir væru sammála því að leikskólakennarar vinna töluvert mikilvægari störf en súpermódel. Hvar er jafnréttið í því?...........................

    19. júní 2003 kl. 20:40 GMT | #

  15. Már Örlygsson svarar:

    Ágætis punktar hörður, en ég held að þótt það sé öruggt að við náum aldrei að gera heiminn réttlátan og góðan, og mennina "jafna", þá þýðir það samt ekki að við eigum að hætta að reyna. :-)

    Ég meina, ég held að réttlætis- og jafnréttisbaráttan sé dáldið lík því að taka til heima hjá sér og vaska upp - maður þarf sífellt að vera að vinna í því bara til að halda ástandinu á heimilinu skikkanlegu.

    20. júní 2003 kl. 11:09 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)