Um stríðið sem fjölmiðlar hafa misst áhugan á

Skrifað 30. mars 2003, kl. 14:48

A warmonger explains war to a peacenik - Bráðskemmtilegur einþáttungur sem lýsir kjarna málsins um stríðið í Írak.

Blaðamaðurinn Christopher Allbritton bloggar Back-to-Iraq.com. Christopher, sem hefur 13 ára reynslu sem blaðamaður, m.a. á AP og New York Daily News, er núna á leið inn í Írak til að taka myndir og segja raunsannar fréttir af gangi mála. Hann vinnur sjálfstætt og ferðakostnaðurinn er greiddur með frjálsum framlögum lesenda hans á vefnum.

Núna hefur ekkert heyrst í Bagdad-búanum Salam Pax (dear Raed) síðan 24. mars s.l. Fregnir herma að bandaríkjamenn hafi vandlega sprengt allar fjarskipta- og internetstöðvar sem þeir vissu af í Bagdad. Það er víst ekki stríðsherrunum í hag að raddir venjulegra borgara Bagdad geti heyrst um allan heim.


Meira þessu líkt: Stríð - Friður.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)