Anomy.net að renna út
ANOMY.NET er að renna út. Ég hef enn nokkra daga til stefnu til að endurnýja skráninguna en útlitið er samt svart því Network Solutions harðneita að taka við kreditkorta upplýsingunum sem ég slæ inn, og þó er ég búinn að reyna trekk í trekk undanfarnar vikur með fleiri en eitt greiðslukort. Svo svara þeir ekki fyrirspurnum sem berast í tölvupósti. Hvað gera bændur?
Meira þessu líkt: Um þessa síðu.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (17)
JBJ svarar:
Hringja... ég hef beðið á línunni hjá þeim í nokkur kortérin
27. mars 2003 kl. 10:37 GMT | #
Kristbjörn svarar:
Bændur gefa skít í Network Solutions, tala við aðila eins og t.d. DirectNic og velja Transfer domain. Þá sendir Netsol póst á administrative kontakt fyrir domainið, og með því að klikka á link neðst í póstinum geturðu heiilað tilfærslu til fyrirtækis sem hugsar betur um kúnnanan en Netsol gerir.
KG - been there, done that.
27. mars 2003 kl. 10:39 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Hafði dottið í hug að hringja, en þekki af gamalli reynslu hvernig svona þjónustuver hjá stórum fyrirtækjum virka - vinnuregla númer 1 er: láta kúnnan bíða í ca. hálftíma á línunni og ef hann leggur á innan þess tíma þá var erindið greinilega ekkert brýnt.
Kristbjörn: Maður hefði haldið að svona flutningur tæki svo langan tíma að lénið rynni út áður. Er þetta svona einfalt eins og þú lýsir því? Hefur þú sjálfur reynslu af DirectNic? Eru þeir betri en t.d. Register.com, sem ég hef heyrt fólk tala vel um?
27. mars 2003 kl. 10:48 GMT | #
Tómas Hafliðason svarar:
Vandamálið við flutning er að það þarf að gera það X marga daga áður en það rennur út, ég held að það séu 15 dagar. Ég reyndi að flytja pottinn einhvern tíman áður rétt áður en það rann út, þeir tóku við greiðslu út af flutningnum það var ekki vandamál en hins vegar fluttist hann aldrei.
27. mars 2003 kl. 11:05 GMT | #
JBJ svarar:
Ég nýtti mér Register.com til að flytja lén frá VeriSign og það tók tæpan dag minnir mig.
Ég er að flytja eða kominn með mest allt mitt til Register.com. Það eru til aðrir sem eru með ódýrari díla en ég treysti ekki alveg líftíma þeirra fyrirtækja.
27. mars 2003 kl. 11:05 GMT | #
Tóró svarar:
Ég atti kappi við NetSol forynjuna fyrir rúmu ári. Þá var vandamálið að netfangið sem lénið hafði upphaflega verið skráð á hafði dáið drottni sínum (með Gæðamiðlun heitinni, blessuð sé minning hennar). Sú reynsla bendir til þess að einhvers konar fuzzy logic sé ríkjandi á vefsvæðinu þeirra, einstakar síður gefa mjög misvísandi upplýsingar og vísa hver á aðra í skemmtilegri kaós. Samt tókst mér þetta að lokum og með geðheilsuna nokkurn vegin óbreytta.
Mórall sögunnar átti að vera að automatísku póstformin þeirra skiluðu að lokum árangri - samt skondið að það skuli vera móttaka greiðslunnar sem þeir stræka á hjá þér, ekki alvöru breytingar ;)
27. mars 2003 kl. 11:20 GMT | #
Kristján Rúnar svarar:
Af hverju sendir þú ekki bara fax? :-)
27. mars 2003 kl. 11:21 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Kristján: hehehe.. kannski að hátæknifyrirtæki dauðans svari bréfum sem berast á pappír. :-)
En já það sýnir glögglega hvað þetta er mikil skítaþjónusta að ég skuli ekki einu sinni ná sambandi við þá þegar það eina sem ég vil er að afhenda þeim peningana mína.
27. mars 2003 kl. 11:27 GMT | #
Freyr svarar:
Ég hef sjálfur alltaf verið hjá register.com og alltaf verið ánægður með þjónustuna hjá þeim. Lenti reyndar í smá veseni eftir að ég lokaði á @simnet.is netfangið mitt, en það var einmitt administrative contact netfangið sem ég gaf þeim. Allar breytingar á skráningum fara í gegnum staðfestingarpósti á a.c. netfangið, líka þegar maður ætlar að breyta um a.c. netfang. Til að fá breytingarnar í gegn án þess að hafa aðgang í a.c. netfangið þurfti að fylla út form og senda með fax-i ásamt afriti af kreditkorti og "valid identification". Persónulega nennti ég ekki að standa í þessu og hringdi frekar í simnet og lét opna fyrir netfangið aftur rétt á meðan ég skipti um a.c. netfang og lét svo loka því aftur. Þetta er náttúrulega ekki register.com að kenna heldur sjálfum mér, en ég læt þessa reynslusögu hér til þess að þú þurfir ekki að hugsanlega lenda í það sama.
27. mars 2003 kl. 11:40 GMT | #
jonarnar svarar:
NetSol neituðu að taka Íslandsbanka- og Búnaðarbanka visa kort frá mér um daginn, fékk lánað Landsbankakort og það virkaði um leið. Hringdi út og talaði við einhvern í 20 mín á meðan hann reyndi að fá kortið í gegn, sagði síðan að ég þyrfti bara að fara á heimasíðuna og setja þetta sjálfur inn..
27. mars 2003 kl. 13:10 GMT | #
Hallur svarar:
Hvað með að gerast .is? er það ekki bara einfaldara?
27. mars 2003 kl. 13:13 GMT | #
Óli G. Håk svarar:
Þú getur líka notað www.koredomains.com þeir eru talsvert ódýrari en t.d. register.com sem að ég notaði á tímabili. Það er að segja ef þú ert að spá í að flytja domainið, hinsvegar er það þannig að einhverjum ákveðið mörgum dögum áður en domainið rennur út geturðu ekki flutt það man hinsvegar ekki hvað þeir eru margir.
Ég var einmitt að flytja tvö domain frá register.com og yfir til koredomains um daginn, virkaði fínt :)
27. mars 2003 kl. 13:51 GMT | #
Már Örlygsson: Lén flutt frá NetSol til Register.com
27. mars 2003 kl. 13:54 GMT | #
Kristbjörn svarar:
Ég hef notað DirectNic til að' flytja domain frá NetSol´frekar en að endurnýja NetSol skráningu. Virkar fínt og gengur í gegn á örfáum dögum.
KG
27. mars 2003 kl. 13:58 GMT | #
Gummi Jóh svarar:
register.com eru mínir menn, það var einfalt að skipta um a.c netfangið þegar ég þurfti þess, eitt símtal út og þurfti að bíða í svona 2 mín og þá reddaði gaurinn þessu í símanum og no time og eina sem ég þurfti að gera til að staðfesta að þetta væri nú ég var að lesa upp síðustu fjóra stafina af kreditkortinu sem ég borgaði lénið með. Frekar auðvelt bara.
27. mars 2003 kl. 14:01 GMT | #
Már Örlygsson: Enn ekkert heyrst frá NetSol
8. apríl 2003 kl. 12:05 GMT | #
Már Örlygsson: Ég leigi hjá Register.com
12. apríl 2003 kl. 08:32 GMT | #