Tilvistarkreppa Svanhildar

Skrifað 26. mars 2003, kl. 03:04

Ljósvakalæðan Svanhildur er í tilvistarkreppu með dagbókarskrifin sín.

Mér hefur fundist gaman að lesa skrifin hennar, kannski einmitt vegna þess að hún hefur virst óhrædd við að miðla einhverju persónulegu. Því segi ég við Svanhildi: Haltu áfram að ögraða sjálfri þér og umhverfinu. Það hafa allt of margir góðar raddir horfið af netinu í einhverju helv. einkalífsréttrúnaðarkasti vegna utan að komandi þrýstings. Með því að vera trú eigin tilfinningu um það hvað er "eðlilegt", þá tekur þú virkan þátt í að hliðra til almenna "norminu". Þetta er nýr miðill og við þurfum öll að vera pínulítið djörf til að tryggja að hann nái að þroskast almennilega. Eftir 10 ár þegar sonur þinn verður orðinn unglingur og "blogg" verður orðið eðlilegur hluti af heiminum, þá mun honum ábyggilega finnast bara kúl að geta lesið hvað mamma hans var að hugsa þegar hann var lítill. Mundu bara að kenna honum að byrja að halda eigin dagbók snemma. :-)


Meira þessu líkt: Útgáfa.


Svör frá lesendum (4)

  1. bio svarar:

    Sjálfskipuðum Íslandsmeistara í bloggkrísum og "kappa" sem á endanum gafst upp á "álaginu" er ljúft og skylt að tilkynna að þessar krísur allar eru stórvarhugaverðar en áhugverðar engu að síður.

    ...og til hamingju með endurkomuna (fallið?)

    26. mars 2003 kl. 09:13 GMT | #

  2. Ágúst svarar:

    Jei! Aftur farið að blása frá Mása ;)

    26. mars 2003 kl. 10:18 GMT | #

  3. Læðan svarar:

    Takk fyrir peppið... Hef þetta í huga og geri mitt besta til að kikna ekki undan normunum... ;o)

    26. mars 2003 kl. 11:45 GMT | #

  4. Már Örlygsson svarar:

    Björgvin: eins og þú sérð á mér þá er aldrei of seint að byrja aftur. hint hint :-)

    Svanhildur: Haltu bara áfram að hafa gaman að þessu. Það skiptir mestu.

    26. mars 2003 kl. 11:51 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)