Siðferði vs. rökfesta?

Skrifað 25. mars 2003, kl. 23:06

Unnur og Svansson skrifa færslur um ólíka hluti sem pirrar þau. Svansson er efni í "spindoctor" djöfulsins. Margir ágætir punktar í skrifum hans, en hann virðist gleyma því að það að vera siðferðisvera snýst ekki endilega um að vera 100% rökfastur.

Unnur skrifar um Íslands hagsældar kex. Unnur er m.a. sorgmædd yfir hegðun íslenskra stjórnvalda.

Svansson skrifar um það sem hann kallar Skógarþrastaráhrifin. Hann er sorgmæddur yfir viðbrögðum almennings og friðarsinna. Hann hefur áður skrifað um stríðið í pistlinum Gott og vont valdajafnvægi.

Svansson er efni í "spindoctor" djöfulsins. Margir ágætir punktar í skrifum hans, en hann virðist gleyma því að það að vera siðferðisvera snýst ekki endilega um að vera 100% rökfastur heldur að trúa á eitthvað jákvætt og standa við það sama hvað öll rök segja. Að vera siðferðisvera kallar oft á mikinn styrk.

Ef við höfum ekki varann á okkur þá getur rökfestan leitt okkur á slíkar villigötur að okkur tekst að réttlæta það að varpa kjarnorkusprengjum sem drepa hundruðir þúsunda saklausra borgara með því að "þær hafi [ekki] verið alslæmar með tilliti til þess sem gerðist næstu áratugi á eftir". Rökfestan lýsir oft beinu og breiðu hraðbrautina til heljar.

Mér leiðist þegar greindir menn eins og Svansson tala um að stríð í Írak sé skárri kostur en að halda áfram með viðskiptabannið sem hefur á síðustu árum drepið hundruðir þúsunda (ef ekki milljónir) saklausra manneskja, og láta eins og þar með séu þeir búnir að réttlæta drápin á enn fleiri saklausum borgurum. Þeir gleyma því að jafnvel undir kúgun viðskiptabanns og ógnarstjórn Saddams þá þrífst menning og líf. Mannkynið finnur alltaf leið til að lifa og brosa og eiga börn og halda afmæli þótt aðstæður séu bágar. Í stríði er hins vegar bara dauði og ógn. Það sefur enginn vel þegar sprengjum rignir. - Svo dettur engum þessara spekinga í hug að skoða þriðju leiðina; að velja friðinn og afnema viðskiptaþvinganirnar. Það væri rétta leiðin, sama hvað öll rök segja.

Ég er friðarsinni. Þarf ég að segja fleira?

(Að velja árásarstríð er aldrei valkostur, því ófriður er vítahringur sem maður annað hvort rýfur eða tekur þátt í að viðhalda.)


Meira þessu líkt: Lífssýn, Stríð - Friður.


Svör frá lesendum (9)

  1. Geir svarar:

    Ætli "menning" Íraka sé ekki aðallega fólgin í því að mála veggspjöld af sínum ástkæra þjóðarvin með byssuna í annarri og VX-gasið í hinni?

    26. mars 2003 kl. 02:41 GMT | #

  2. Unnur svarar:

    Neinei, láttu ekki svona Geir... Menning Íraka felst líka ábyggilegaí því að syngja skrýtnar vísur og dansa og hafa áhuga á skrýtnum sögum og skrýtnum bókmenntum og skrýtnum þjóðsögum og mýtum um eðli lands og þjóðar. Þúst, þetta sama og allar siðaðar þjóðir státa sig af... ;)

    26. mars 2003 kl. 02:51 GMT | #

  3. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    Ég myndi vera stoltur af því að vera efni í Spindoctor Djöfulsins. Honum veitir ekki af smá image management greyinu...

    26. mars 2003 kl. 14:37 GMT | #

  4. Svansson.net svarar:

    Hey,Tryggvi, hvaða skítakomment var þetta;)

    http://www.svansson.net/index.php?itemid=871

    26. mars 2003 kl. 15:33 GMT | #

  5. Tryggvi R. Jónsson svarar:

    Ég var að sjálfsögðu að meina að það væri Djöfullinn sem þyrfti góðan Spindoctor... þú átt að vera upp með þér að ég treysti þér til að bæta ímynd svo ,,umdeildrar" persónu.

    26. mars 2003 kl. 15:53 GMT | #

  6. Már Örlygsson svarar:

    Svansson segir:

    bq. "Ég les úr þessu þá merkingu að hann byggi afstöðu á tilfinningum frekar en rökum í mörgum eða amk einhverjum tilvikum."

    Já það er rétt ef við ákveðum að það sé gagnlegt að kalla "siðferðisleg rök" "tilfinningarök". Þetta gerum við flest - vonandi öll. Stundum verður árekstur milli blákaldra raka og siðferðistilfinningar okkar og við neyðumst til að velja. Aðgerðin sem felst í að velja þarna á milli er alltaf "mórölsk" sama hvorn kostinn við veljum. Þannig felst ákveðin siðferðisleg afstaða í því að velja alltaf rökleiðina framyfir hina "siðlegu".

    Þessu tengt er grein Svavars Muzaks um tilfinningarök, Að rökstyðja eða réttlæta: http://www.simnet.is/muzak/20030101_blogarchive.php#87506168

    26. mars 2003 kl. 15:54 GMT | #

  7. Svansson.net svarar:

    Ah, ég misskildi Tryggva, hélt það væri mín ímynd sem þú vildir lappa upp á:)

    26. mars 2003 kl. 18:02 GMT | #

  8. Már Örlygsson: Eitthvað þarf að gera - en hvaða "eitthvað"?

    "Um daginn skrifaði ég um grundvallar prinsipp. Eins og ég bjóst við þá svaraði Matti Á stuttlega og Jói JBJ og Ragnar Torfi honum að bragði. Gaman þegar fólk glímir í dagbókinni manns. Daginn eftir skrifaði Jói ágætlega um sófahershöfðingjagrein..." Lesa meira

    17. apríl 2003 kl. 11:14 GMT | #

  9. Már Örlygsson: http://mar.anomy.net/entry/2004/05/22/01.36.26/

    "Svansson segir í gær: "I get the point", og vísar þar til gamallar bloggfærslu sem ég skrifaði í fyrra um Íraksstríðið. Það var einmitt í þeirri færslu sem ég kallaði hann "Spindoktor djöfulsins". :-) Áhugaverðir punktar hjá Munda. Það fylgdi..." Lesa meira

    22. maí 2004 kl. 01:36 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)