Hvað segir maður við svona?

Skrifað 25. mars 2003, kl. 18:44

Ármann Reynisson hringdi í mig áðan og kynnti sig með nafni og var hinn kumpánlegasti. Hann spurði mig strax hvort ekki gæti verið að hann hefði lesið eitthvað haft eftir mér um "blogg" í Mogganum um daginn. Ég játti því. Hann hélt áfram að spyrja mig eitthvað út í þetta, hvað ég væri að gera, og þannig fram eftir götunum. Eftir stutt spjall vatt hann sér þó að efninu og sagði að hann væri með bók, "Vinjettur", sem hann hefði gefið út. Jú, jú, sagði ég og bjóst við að hann vantaði aðstoð við að koma upp heimasíðu eða eitthvað... En þá hóf hann upplestur úr einhverjum ritdómum, og niðursoðnum símasölutexta sem rómaði þessa ágætu bók. Markmiðið með símtalinu var sumsé allan tíman að selja mér umrædda bók. Ég stöðvaði ræðuna og lofaði manninum að skoða síðuna hans, en sagði honum jafnframt að ég keypti aldrei neitt af símasölumönnum. Við kvöddumst.

Í gær hringdi einhver sölumaður í mig í farsímann minn og ætlaði að selja mér tryggingu. Ég sagði við manninn með minni björtustu og viðkunnalegustu röddu: "Ég vil ekkert tala við þig" og bætti við "og þú mátt aldrei aftur hringja í mig í þetta númer". Manngreyinu virtist brugðið, og kvaddi í einhverri taugaveiklun og lagði á í snarhasti.

Ég finn til með símasölufólki.


Meira þessu líkt: Sögur og minningar, Viðskipti.


Svör frá lesendum (4)

  1. Zatoland: Heiðarleiki

    "Heiðarleiki er ekki alltaf velkomin í þessum heimi, það er til fyrirbæri sem ég kalla kurteisislygi og er eiginlega orðin félagsfræðileg "skylda" þegar þú vilt ekki tala við einhver eða vilt ekki gera eitthvað,þá verða menn alltaf að koma með..." Lesa meira

    28. mars 2003 kl. 14:37 GMT | #

  2. Már Örlygsson: Svar við ágengum símasölumönnum

    "Keli nörd skoðar leiðir til að kljást við ágenga símasölumenn sem virða hvorki fjarsölubannlista Hagstofunnar né símfyrirtækjanna. Ef allt annað klikkar þá má kannski benda Kela á þetta sem mögulegar lausnir: EGBG anti-telemarketing counterscript JUNKB..." Lesa meira

    28. mars 2003 kl. 14:47 GMT | #

  3. Arnór Bogason svarar:

    Tjah, ég er símasölumaður, og mér finnst fólk stundum alveg mega sýna aðeins meiri skilning, maður er nú bara að vinna vinnuna sína...

    31. mars 2003 kl. 16:15 GMT | #

  4. Már Örlygsson: Alþjóðavæðefokk!?

    "Snemma í morgun, líklega um átta leytið, hringdi síminn. Lítil konurödd á hinum endanum spurði á aðeins bjagaðri ensku hvort hún gæti talað við "ma'r oerluggsun". Ég gaf til kynna að það væri líklega ég. Konan kynnti sig og sagðist..." Lesa meira

    25. apríl 2003 kl. 22:47 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)