Movable Type er sniðugt
Bráðeinfalt í notkun, vel hannað, mjög sveigjanlegt. Ég eyddi ca. 3 tímum í gær/nótt í að
- Lesa um MT fram og aftur og sækja það yfir netið.
- Setja það upp á heimasvæðinu mínu á Klaka (að stórum hluta sjálfvirkt ferli).
- Byrja að skrifa prufufærslur og sjá þær birtast.
- Byrja að fikta í stillingum og sníða template skjölin að mínum þörfum.
Það er greinilegt að MT er hannað fyrir fyrir svona quasi-nörda eins og mig sem kunna allan fjandann í tölvugrúski en hafa ekki snefil af þolinmæði í eitthvað kerfisuppsetningarfokk.
Í dag er ég svo búinn að eyða skitnum 2-3 tímum í viðbót og er strax kominn vel á veg með að brjóta template-skjölin upp í skynsamlegar samnýtanlegar einingar, endurforrita hluta þeirra þannig að þær uppfylli allar sérviskuþarfirnar mínar (falleg URL, aðgreining milli stuttra hugleiðinga og lengri greina, etc.) og púsla öllu saman í heilar síður.
Svona eiga góð þróunartól að vera.
Meira þessu líkt: Movable Type.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (2)
Gummi Jóh svarar:
Velkominn aftur! Gaman að fá þig á svæðið!
MT er einmitt alveg snilldar kerfi sem ég gæti ekki verið án. Skil ekki enn hvernig ég gat bloggað aftur í gegnum blogger.com þegar að serverinn hans Egils hrundi með MTinu á. Alveg þrusutól.
26. mars 2003 kl. 08:55 GMT | #
Tryggvi R. Jónsson svarar:
Til lukku með nýja kerfið! Það er allt annað sjá þetta hjá þér núna :-) Ætli maður fari ekki að klára þessa blessuðu íslenskun á MT fyrst MT notendum er að fjölga svona mikið á Íslandi...
26. mars 2003 kl. 15:58 GMT | #