Nokkrar tylliástæður
...liggja að baki því að ég vel daginn í dag til að endurlífga heimasíðuna mína:
- Í gær birtist miðopnugrein í Morgunblaðinu um "blogg" og vefleiðara eftir Hildi Einarsdóttur. Gott framtak og líklega ein allra besta umfjöllunin um vefleiðara í íslenskum fjölmiðlum til þessa. Í greininni var talað við mig (ásamt fleirum) og ég titlaður
"...manna fróðastur um vefleiðara"
og"Vefleiðarahöfundur"
þó ég frábiði mér þann titil sérstaklega til að forðast meinhæðnar sneiðar frá vinum og kunningjum. - Jósi las greinina og sendi mér góðlátlega sneið og hvatti mig til að byrja aftur að skrifa. (Minnisp: Salvör sendi mér svipaða sneið síðasta haust :-)
- Ég er búinn að lofa Salvöru að skrifa um höfundarétt á netinu fyrir hóp áhugasamra KHÍ nema og vantar þægilegan vettvang til að miðla þeim pælingum.
- Ég er á kafi í verkefnum þessa dagana og hef engan tíma til að setja upp heimasíðu fyrir sjálfan mig. En eins og allir vita þá er aldrei eins gaman að nördast og þegar maður á að vera að gera eitthvað allt annað.
- Í dag er akkúrat eitt ár liðið síðan dagbókin mín hvarf með manni og mús. Bloggleysuafmæli!
Meira þessu líkt: Um þessa síðu, Útgáfa.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (2)
Ágúst svarar:
Það hefur líka margsannað sig að menn starta helst ekki bloggsíðu nema þegar mjög mikið er að gera eða menn eru í prófum. Svo útgáfa af klisjukenningunni að alvöru literatúr verði ekki til nema við þrengingar og listamenn hætta að verða skapandi um leið og þeir eignast pening. Sælir eru fátækir og málglaðir eru uppteknir. Eða hvað?
26. mars 2003 kl. 14:12 GMT | #
Svansson.net svarar:
Ég var einmitt að hugsa það um daginn hvort það væri ekki farið að nálgast árið;). Þú hvarfst stuttu eftir að ég byrjaði.
26. mars 2003 kl. 15:46 GMT | #