Helv. umhverfislýður?
Mér finnst dáldið athyglisvert hvernig þessi alhæfði hópur "umhverfisverndarsinnar" virðist fara í fínustu taugarnar á mörgum. - Bréf til Svavars Knúts Kristjánssonar og Guðmundar Svanssonar.
Sælir félagar Svavar og Guðmundur (Svansson).
Las greinarnar ykkar (Svavar, Svansson) um umhverfisvernd og Kárahnjúkamálið og hafði gaman að.
Mér finnst dáldið athyglivert hvernig þessi alhæfði hópur "umhverfisverndarsinnar" virðist fara í fínustu taugarnar á mörgum.
Athyglivert að tvennu leyti, annars vegar vegna þess að þessi hópur er ekki til sem einsleitur hópur í raun og veru (þetta er svolítið eins og að hatast út í fólk með gleraugu) og hins vegar vegna þess að það er greinilega eitthvað raunverulegt sem fer í taugarnar á fólki sem agnúast út í umhverfisverndarsinna.
Fyrra atriðið er sér í lagi áhugavert af því að líkt og um allar aðrar alhæfingar um stóra stóra hópa fólks (svertingja, gyðinga, konur, etc.) þá ber þessi umræða ákveðin merki vanþekkingar og þröngsýni af hálfu þeirra sem beita alhæfingunni sem rökvopni. (Guðmundur: ath, ég er ekki að halda því fram að þú hafir endilega gert það í pistlinum þínum - er bara að tala um þetta almennt.)
Seinna atriðið er kannski öllu athygliverðara af því þessi tilfinningarök þeirra sem þola ekki "umhverfisverndarlýðinn" hljóta að eiga fullan rétt á sér eins og önnur tilfinningarök. Það er eitthvað í fari sumra umhverfisverndarsinna sem veldur þessum pirringi.
Hvað eru sumir umhverfisverndarsinnar að gera vitlaust? Það hlýtur að vera eitthvað meira en lítið, fyrst þeim tekst oftar en ekki að pirra meira að segja eitilharðan umhverfisverndarsinna eins og mig!
Ég veit ekki sjálfur hvað veldur, en velti fyrir mér hvort þið kappar getið hjálpað mér við þetta.
Guðmundur: Ég hefði gaman að því ef þú gætir skrifað niður þínar pælingar um það hvað veldur því að sumir iðnvæðingarsinnar nota gildishlaðnar alhæfingar og niðrandi tón í rökræðum við talsmenn umhverfisverndar.
Svavar: Gætir þú á móti reynt að velta fyrir þér hvað það er í fari sumra umhverfisverndarsinna sem espar jafnvel skynsamasta fólk upp gegn málstað umhverfisverndar?
Mér þætti einmitt sérstaklega gaman að sjá ef þið kappar næðuð að vera sæmilega einlægir í því að grafa undan veikleikum ykkar eigin "liðs". Kannski næst með því móti að varpa sæmilega fersku ljósi á frekari umræður af þessu tagi...
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.