Færslur föstudaginn 22. nóvember 2002

Kl. 13:56: Að listfyrirlestri loknum... 

Í gær bað ég þá sem ekki kæmu á fyrirlesturinn að segja mér hvort glærurnar sem ég setti á vefinn væru að "virka" eins og þær komu fyrir þarna án nokkurra útskýringa.

Unnur (http://unnur.klaki.net/) sendi mér nokkrar góðar ábendingar og linka þannig að hún var greinilega að fatta hvað ég var að fara...

En Guðmundur Svansson sem þekkir mig kannski heldur minna en Unnur sagðist ekki vera alveg að ná þessu:

"Virkar ekki :) Sem er ekki von. Þarna eru eingöngu blákaldar staðreyndir og linkar. Eða svo gott sem."

Það kemur ekkert á óvart... :-) Fannst þetta samt forvitnileg pæling.

Fyrirlesturinn vakti almenna lukku á fundinum, þannig að líklega hefur lífleg sviðsframkoma með útskýringum hjálpað til með skilninginn. :-)

Ennfremur kom þessi tala mín (markvisst) í framhaldi af þremur fyrirlestrum þar sem útpæld listaverk voru kynnt og fjallað var um hvernig listspekúlantar höfðu reynt að skilgreina nákvæmlega list á netinu og list í netvæddu samfélagi - að því er mér fannst á dáldið stýrðan og miðlægan hátt með mikilli áherslu á tækni, tækni, tækni og listamanninn sem meðvitaðan geranda og höfund.

Ég vildi þess vegna nýta tækifærið og benda á það hvernig það sem mér finnst vera áhugaverðustu hlutirnir í netkúltúrnum (í listrænum og heimspekilegum skilningi)

  1. koma oft frá fólki sem hefur engan áhuga á því að vera listamenn
  2. verða oft til án höfundar eða miðstýringar (e."emergance")
  3. hafa oft ekkert með tækni að gera í sjálfu sér

Sendu þitt svar | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í nóvember 2002

nóvember 2002
SunMán ÞriMið FimFös Lau
          1. 2.
3. 4. 5. 6. 7. 8. 9.
10. 11. 12. 13. 14. 15. 16.
17. 18. 19. 20. 21. 22. 23.
24. 25. 26. 27. 28. 29. 30.

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)