Í kvöld: Umræðufundur um myndlist, netið og heimspeki
Smá tilkynning.
Í kvöld heldur Félag áhugamanna um heimspeki umræðufund þar sem grafist verður fyrir um hvernig netið, myndlist og heimspeki tengjast innbyrðis.
Fréttatilkynning: http://www.heimspeki.hi.is/?meira?id=25 (í tilkynningunni gleymdist að taka skýrar fram áhersluna á netið.)
Málið er að ég verð þarna með örstutta framsögu þar sem ég mun kynna hvernig ég tel að (mynd)list geti haft áður óþekktar birtingarmyndir á netinu - t.d. hvernig alveg ótrúlega listrænt áhugaverðir hlutir eru að koma frá fólki sem hefur engan listrænan bakgrunn og hefur engan áhuga á myndlist.
Á eftir verð ég svo þáttakandi í pallborðsumræðum ("panel") um netið, heimspeki og listina.
Páll Thayer og Ragnar Helgi Ólafsson ræða tölvulistaverk sem þeir hafa verið að gera:
og Margrét Elísabet Ólafsdóttir mun halda smá fyrirlestur í upphafi fundar.
Ég vil endilega hvetja sem flesta að mæta og taka þátt í umræðunum. Ég held að þær geti orðið mjög áhugaverðar.
-- Már Örlygsson - ekki listamaður, ekki heimspekingur, bara netnörd.
P.S. í BA ritgerðinni minni frá Listaháskólanum fjallaði ég einmitt, á eilítið sundurlausum, heimspekilegum nótum, um netið og tengsl þess við myndlist.)
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.