Re: Eignarréttur og vinstri-frjálshyggja
Í seinasta skeyti talaði ég um eignarrétt og vinstri-frjálshyggju og líkt og mig grunaði þá tókst mér að hræða a.m.k. eina sál nægilega mikið til að hún sendi mér svarbréf og tók mig létt á beinið fyrir sakir gamals kunningsskapar. Ég svara því hér.
Í seinasta skeyti talaði ég um eignarrétt og smá um vinstri-frjálshyggju og líkt og mig grunaði þá tókst mér að hræða a.m.k. eina sál nægilega mikið til að hún sendi mér svarbréf og tók mig létt á beinið fyrir sakir gamals kunningsskapar okkar. :-)
Svarið mitt birtist hér opinberlega en mannsekjan sem ég tala við fær að vera nafnlaus.
Halló.
"Í greinarkorni þínu um eignarrétt lætur þú hafa eftir þér margt skrýtið og skondið og skírir það fallegum orðum. Hugleiðingar þínar um eignarréttinn hræda mig en eg ætla ekki að ræða það heldur spurja þig einnar spurningar: Er Hrói höttur alþýðuhetja og riddari réttlætis í þínum augum?"
Hehe, "I'm damned if I do, and damned if I don't." :-) Ef ég segi já, þá fæ ég á mig feitan kommúnistastimpil frá þér, en ef ég segi nei, þá veit ég ekki nema þessar milljónir manna sem hafa lesið söguna um Hróa hött og hrifist af henni/honum stimpla mig sem kaldrifjaðan rudda. Ég segi bara pass í þetta skiptið :-)
...enda hefur sagan um Hróa hött nánast ekkert með inntak þessara pælinga minna að gera. Taktu eftir að ég segi "pælinga" (og legg áherslu á það) vegna þess að ég taldi mig ekki vera að innræta þeim sem læsu neinar skoðanir. Kommonn, ég veit ekki einu sinni sjálfur hvað ég á að gera við þessar pælingar.
Það er margt sem ég pæli enda er ég sífellt leitandi og aldrei viss um neitt.Sér í lagi er ég ekki búinn að komast að neinum Stóra sannleik í pólitískum skilningi. Sumum gæti e.t.v. þótt það eitthvað veikleikamerki, en ég lít á það sem styrk og merki um að ég sé raunsær. Ég trúi því nefnilega ekki að það sé til einhver ein rétt niðurstaða í pólitík.
Ég hef skoðað mjög margt í pólitískum hugmyndafræðum gegnum árin og tel mig skilja nokkuð ítarlega eðlisþætti hinna mismunandi kenninga - styrkleika þeirra og veikleika. Allar hafa þær veikleika en þeir liggja á mismunandi sviðum, og það hversu stórir/þungir veikleikarnir eru ræðst á endanum alltaf af siðferðislegu gildismati manns (eða okkar sem samfélags). Þá gildir einu hvort maður þykist vera rosalega "kaldur og rökfastur" í mati sínu, því kuldinn og rökfestan eru í sjálfu sér hlaðin ákveðnum (siðferðislegum) gildum.
Ég byrjaði fyrst á að skoða vinstri væng stjórnmálakenninganna og sá þar fullt af göllum sem gerðu það að verkum að ég varð afhuga þeim. Kommúnisminn og Marxisminn voru þar fremstir í flokki. Seinna fékk ég áhuga á því sem lá á hægri vængnum og varð mjög hrifinn af því sem ég fann þar. Hins vegar vaknaði ég upp við það þar lá heilmikið af peningum en að sama skapi lítið af mannlegum gildum og það olli því að ég hef lagt aftur af stað í átt til vinstri - einfaldlega vegna þess að mér finnst á hægri vængnum sé landlæg siðferðisleg uppgjöf. Mér leiðist að gefast upp.
Handan við minarkismann (frjálshyggjuna) sem ég þykist vita að þú aðhyllist liggur anarcho-kapítalisminn og handan við hann liggur hefðbundinn (vinstri) anarkismi a la Siggi Paunk, og væntanlega handan við hann hlýtur vinstri-minarchismi að liggja. Mér sýnist bara að sú pólitíska stefna hafi enn ekki verið formúleruð með formlegum hætti.
Það sem fær mig til að hugleiða um eignarhugtakið (sem eitthvað sem mögulega greinir vinstri-frjálshyggju frá hægri-frjálshyggju ) er hrein forvitni. Þ.e. mér leikur forvitni á að vita hvað býr í ókannaða landinu milli hins rómantískt vonlausa anarkisma og ógnarstjórnar forræðishyggju-kommúnismans.
Það sem ég er að leita að er staður á landakorti pólitísku stefnanna þar sem frelsi einstaklinganna er alls ráðandi (líkt og í hægri-frjálshyggjunni) en (lágmarks)löggjöfin sem lágmarksríkið setur og framfylgir er aðeins önnur.
Ég veit ekki hvort ég á eftir að fíla það sem ég finn, það verður bara að koma í ljós. :-)
"[Hrói] rændi einmitt þá ríku (afsakið: "létti" á eignarrétti þeirra) og gaf til þeirra fátæku og uppskar miklar vinsældir fyrir. Ertu að mæla með hans aðferðum til að "jafna" lifskjör? Ég sé ekki með nokkru móti mun a Þínum boðskap og þessarar frægu sögupersónu."
Ég talað aldrei um "að létta" (so.) á eignarrétti eins eða neins, heldur um "léttan" (lo.) eignarrétt - þ.e. rétt sem vægi léttar á vogarskálum samfélagslega réttlætisins en mörg önnur réttindi og væri e.t.v. ekki í verkahring lágmarksríkisins að vernda, nema að litlu leyti.
Þannig hvet ég þig til að lesa aftur pælingarnar mínar í góðu og fórdómalausu skapi og skoða þær í því ljósi að þær eru bara pælingar og ekkert annað - heimspekilegar Müllersæfingar.
Mundu líka að ég er minarkisti alveg eins og þú, og þar að leiðandi er ég augljóslega lítið hrifinn af því að lífskjör séu tryggð með valdbeitingu (að hætti Hróa). Ég held að lífskjör eigi að vera náttúrulegt "product" samfélagskerfisins en ekki eitthvað sem ríkið skiptir sér af eða stýrir.
...og taktu nú eftir því nú kemur rúsínan í pylsuendanum...
Það er einmitt þetta sem fer í taugarnar á mér við hægri-frjálshyggjuna: Í hennar samfélagskerfi er ríkið aktíft að skipta sér af skiptingu verðmætanna í samfélaginu með því að skilgreina mjög þungan eignarrétt og hafa mjög sterk (verndandi) afskipti af honum.
Hægri frjálshyggjan er nokkuð sannanlega sú samfélagsskipan sem býr til einna mestan hagvöxt og mest af *efnislegum* verðmætum, en um leið er jafn öruggt að hún býr til samfélag þar sem nokkuð föst prósenda fólks býr við *hlutfallsega* mjög bág lífskjör (ég hef rætt við hagfræðimenntaða hægrimenn og þeir styðja þessa fullyrðingu mína) og ég held að slíkt samfélag sé frekar ófriðsamlegt og óstöðugt félagslega og því fari ótrúlega mikill mannauður til spillis.
Sú spurning sem ég vonast til að fá svar við er: Er til einhver samfélagsskipan með jafn miklu "frelsi" og hægri-frjálshyggjan en sem tryggir betur félagslegan stöðugleika og frið og tryggir betri nýtingu á hinum fjölbreytta mannauði samfélagsins - þótt efnisleg verðmætasköpun verði e.t.v. eitthvað minni?
...og eins og ég sagði áður þá veit ég ekki hvað ég mun finna á leit minni og hvort ég mun fíla það?
Ég veit bara að leitin er skemmtileg. :-)
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.