Hvers konar fólk?

Skrifað 26. ágúst 2002, kl. 18:36

Það fer ekki hjá því
þegar maður hefur eignast lítið barn,
að maður velti því fyrir sér
hvað fær fólk til að finna upp
trúarbrögð sem kenna hugmyndir á borð við
"erfðasyndina".

Það hlýtur að þurfa að vera
dáldið skringilega innrætt
til að detta í hug
að tengja nýfædd börn við syndsemi
og óheilagleika,

því þeir sem raunverulega
þekkja til lítilla barna vita að
þar kemst hugmyndin um hreinleika og syndleysi
næst því að sleppa
út í skítugan efnisheiminn.

Engir nema kynsveltir og ógiftir
kaþólskir kennimeistarar
gætu ímyndað sér svona nokkuð
um lítil börn.

Það er mín kenning

eftir rúmlega sex vikna
sleitulausar rannsóknir
á eigin syni...


Meira þessu líkt: Logi Garpur.


Svör frá lesendum (2)

  1. Halldór E. svarar:

    Blessaður Már, þarna er ég svo innilega ósammála þér, þó hvorki kynsveltur né katólskur og meira að segja kvæntur. Ég upplifi enda erfðasyndina ekki sem glæp dóttur minnar heldur atferli sem er henni algerlega innbyggt og hún getur ekkert að gert. En það breytir ekki þeim raunveruleika að erfðasyndin er til staðar. Sú synd að geta með engu móti hugsað um neitt annað en sjálfan sig, vanmáttur til að skynja veruleikann öðruvísi en með hugtakinu ÉG. Aðrir eru ekki til, skipta ekki máli, það er aðeins ÉG sem er. Adam Smith gengur út frá þessum hvata ungbarnsins sem grundvelli kapítalismans og segir það mikilvægasta hvata kapítalismans að hver hugsi AÐEINS um eigin hag. Í þessu felst erfðasyndin að mínu mati og reyndar er það ekki aðeins mín trú, breskur guðfræðingur og síðar biskup W. Temple lýsir þessu gríðarvel í einu riti sínusem ég man reyndar ekki hvað heitir.

    20. október 2003 kl. 14:14 GMT | #

  2. Már Örlygsson svarar:

    Ég viðurkenni að það er orðið ansi langt síðan ég lærði kristinfræðina mína en síðast þegar ég vissi þá var erfðasyndin upprunnin í frumsyndinni ("the original sin"?) sem olli því að Adam og Eva voru gerð brottræk úr Paradís fyrir að hafa brotið gegn boði Guðs, og að fyrir þeirra sakir einar væru öll börn syndug þegar þau fæðast.

    Ég man ekki betur en þetta hafi verið kenningin sem Vigfús sóknarprestur kenndi okkur krökkunum í grunnskólanum á Siglufirði forðum, og ég veit fyrir víst að þetta er kenningin sem mamma mín lærði í sinni trúfræðslu á sínum tíma.

    Mig grunar að hugmyndir flestra leikra Íslendinga um eðli og merkingu erfðasyndarinnar séu meira í ætt við það sem ég og mamma mín lærðum, þótt þú og aðrir betur fræddir leggið dýpri og blæbrigðaríkari merkingu í hugmyndina um erfðasyndina.

    21. október 2003 kl. 00:17 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)