Fćrslur mánudaginn 26. ágúst 2002

Kl. 18:36: Hvers konar fólk? 

Ţađ fer ekki hjá ţví
ţegar mađur hefur eignast lítiđ barn,
ađ mađur velti ţví fyrir sér
hvađ fćr fólk til ađ finna upp
trúarbrögđ sem kenna hugmyndir á borđ viđ
"erfđasyndina".

Ţađ hlýtur ađ ţurfa ađ vera
dáldiđ skringilega innrćtt
til ađ detta í hug
ađ tengja nýfćdd börn viđ syndsemi
og óheilagleika,

ţví ţeir sem raunverulega
ţekkja til lítilla barna vita ađ
ţar kemst hugmyndin um hreinleika og syndleysi
nćst ţví ađ sleppa
út í skítugan efnisheiminn.

Engir nema kynsveltir og ógiftir
kaţólskir kennimeistarar
gćtu ímyndađ sér svona nokkuđ
um lítil börn.

Ţađ er mín kenning

eftir rúmlega sex vikna
sleitulausar rannsóknir
á eigin syni...

Svör frá lesendum (2) | Varanleg slóđ

Kl. 18:32: Skrýtiđ (af barni) 

Hann hefur ekki gert neitt merkilegt.
Ţađ eina sem hann hefur gert
er ađ vekja mig ítrekađ á nóttunni,
ropa og prupma eins og versti sjómađur,
ćla yfir mig allan,
og míga á mig ţegar síst skyldi.

Hann segir ekki orđ, og gerir ekkert merkilegt.
Hann í mesta lagi grćtur og orgar.
En samt ţykir mér alveg vćnna um hann
en nokkuđ annađ í lífinu.

Ţessi litli terroristi hefur tekiđ
líf mitt í gíslingu.
Međ sínar litlu hlýju hendur,
sem fálma stjórnlausar í hálsakotinu mínu
og stóru augun sem horfa svo hugfangin
á hversdagslegar ljósakrónur og hurđarkarma
eins og slíkir undragripir hafi aldrei áđur
sést.

Ţeir kalla ţađ "Stokkhólmsheilkenniđ",
ţegar sem fórnarlömbin tengjast kúgurum sínum
sterkum tilfinningaböndum.

Kannski eru ţessar tilfinningar ţannig - hver veit?
En eitt veit ég, og ţađ er ađ
mér ţykir alveg óskaplega vćnt
um ţennan litla dreng.

- - - - -

Í dag fór Logi Garpur í 6 vikna skođun á Heilsuverndarstöđinni. Hann reyndist jafn heilbrigđur og daginn sem hann fćddist. Mćldist: 5,5 kg, 58 cm ađ lengd og höfuđummál 40 cm.

Svör frá lesendum (1) | Varanleg slóđ


 

Flakk um vefsvćđiđ



 

Fćrslur í ágúst 2002

ágúst 2002
SunMán ŢriMiđ FimFös Lau
        1. 2. 3.
4. 5. 6. 7. 8. 9. 10.
11. 12. 13. 14. 15. 16. 17.
18. 19. 20. 21. 22. 23. 24.
25. 26. 27. 28. 29. 30. 31.

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir ţetta skjal

(Atriđin í listanum vísa á ákveđna kafla ofar á síđunni.)