Ég er orðinn pabbi
...og fíla það vel!
Strákurinn hefur hlotið nöfnin Logi Garpur og í þjóðskránni er hann kenndur við mig, Másson.
Fyrir myndaþyrsta þá er komin upp einföld vefsíða í nafni drengsins: garpur.anomy.net
Hann er verulega yndislegur og rauðhærður eins og ég (og öll móðurfjölskylda Stínu) og heilbrigður og hraustur með langa putta og ótrúlegan hæfileika til að halda höfði og horfa í kringum sig þar sem hann liggur á maganum.
Ég er tölvunörd á kvöldin en á daginn og nóttunni er ég betur þekktur sem "Ofurpabbi" og skipti á kúkableyjum, þvæ (tau)bleyjur og barnaföt, vaska upp og ... allt það. Ekki svo að skilja að Stína geri ekki neitt, hún hefur nóg að gera að troða mjólk ofan í þessa óstöðvandi át- og pissmaskínu - dag og nótt.
Kisurnar Lufsa og Pussa vita ekki enn alveg hvaðan á þær stendur veðrið og pæla eflaust mikið í því hvenær þetta rauðhærða, grátandi skrímsli fer aftur heim til sín... :) Þær voru fyrstu dagana alveg dauðhræddar við grátrokurnar í honum, en eru núna að verða sífellt forvitnari um þetta litla nýtilkomna "gæludýr" sem er alveg að bursta þær í samkeppninni um athygli og bakstrokur.
Rassasleikjur eins þær mega því miður ekki koma mjög nálægt svona litlum görpum fyrr en eftir nokkra daga (viku eða tvær) þegar líkami hans hefur náð að byggja upp sæmilegt ónæmiskerfi. Forvitnin er alveg að drepa grey kisurnar.
Við vorum alveg frá upphafi ákveðin í því að reyna að eiga heima og það er ákvörðun sem við sjáum sko alls ekki eftir!
Meira þessu líkt: Logi Garpur.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.