Leiðarvísir fyrir mótmælendur

Skrifað 18. júní 2002, kl. 10:54

Ég hef lært fjölmargt af þátttöku minni í mótmælaaðgerðunum í seinustu viku. Í því tilefni datt mér í hug að hripa niður einfaldar leiðbeiningar fyrir fólk sem vill mótmæla á friðsamlegan, en áhrifaríkan hátt.

Ég hef lært fjölmargt af þátttöku minni í mótmælaaðgerðunum í seinustu viku. Í því tilefni datt mér í hug að hripa niður einfaldar leiðbeiningar fyrir fólk sem vill mótmæla á friðsamlegan, en áhrifaríkan hátt.

1) Ekki standa öll saman í einum þéttum hóp.

Ef allir eru í einni hrúgu þá er svo auðvelt að fela mótmælin með því að leggja rútu fyrir framan hópinn eða með þéttum "veggjum" af lögreglumönnum. Ef allir eru í einni hrúgu þá geta fjölmiðlar líka auðveldlega valið sjónarhorn þar sem hvorki sést tangur né tetur af mótmælunum.

2) Dreifið ykkur sem víðast.

Það verður seint ofmetið mikilvægi þess að dreifa mótmælunum sem víðast. Bæði kemur það í veg fyrir að lögregla eða fjölmiðlar geti "falið" mótmælin, og svo líta dreifð mótmæli líka út fyrir að vera stærri en ella. Þetta gildir sérstaklega í mannþröng á opinberum samkomum.

3) Verið kurteis.

Fúkyrði og langatöng á lofti gera aldrei neitt gagn. Í besta falli hefur dónaskapur engin áhrif, en í versta falli gefst fjölmiðlum tækifæri á að varpa upp niðrandi mynd af mótmælunum sem kann að koma í veg fyrir að fleiri mótmælendur bætist í hópinn seinna. Besta leiðin til að vinna fólk til fylgis við málstað sinn er að hegða sér friðsamlega og kurteislega og leyfa málstaðnum að tala fyrir sig sjálfan.

4) Fylgið fyrirmælum lögreglu (svo fremi að þau séu lögmæt).

Lögreglan er yfirleitt bara að vinna vinnuna sína og óþarfa mótþrói gerir alla bara fúla og erfiða í samstarfi. Oft er alveg hægt að mótmæla á jafn áhrifaríkan hátt þótt maður standi nokkrum metrum aftar eða aðeins til hliðar.

5) Spurjið spurninga og fylgist með.

Ef þið eruð beðin af lögreglu eða öðrum að gera eitthvað sem ykkur þykir óeðlilegt, verið þá dugleg að spurja af hverju og til hvaða laga er verið að vísa, takið niður nafn og númer viðmælanda ykkar, biðjið um að fá að tala við yfirmann hans. Hlustið vandlega á það sem við ykkur er sagt.

6) Takið myndir og setjið á netið.

Ljósmyndir og vídeómyndir eru skemmtileg heimild sem má nota til að ná athylgi fjölmiðla hvar sem er í heiminum. Svo nýtast myndir sem sönnunargögn ef eitthvað fer úrskeiðis og geta hjálpað til við að halda öllum á mottunni.

7) Hafið á hreinu hverju þið eruð að mótmæla.

Mótmæli ykkar eiga að komast fyrir í *einni* stuttri setningu. Orðið setninguna aftur og aftur í huganum áður en þið farið í mótmælin. Þessi einfalda og skýra setning Verður gulls í gildi þegar fjölmiðlafólk víkur sér að ykkur og spyr "hverju ert þú að mótmæla?"

8) Talið um mótmælin hvar sem þið farið.

Sendið tölvupóst, sendið vinum ykkar SMS, látið sem flesta vita af mótmælunum og verið líka dugleg um að tala um þátttöku ykkar að mótmælunum loknum. Sendið fjölmiðlum tilkynningar. Skrifið reynslu ykkar á málefnalegan og heiðarlegan hátt og setjið á vefinn. Hafið frásögnina á ensku ef málefnið nær út fyrir landssteinana.

9) Munið að lögreglan fylgist með netinu.

Lögregluyfirvöld kunna sko alveg á netið. Þeir skrá sig á póstlista og fylgjast með því sem mótmælendur eru að gera og segja. Látið það ekki stöðva ykkur, því friðsamlegir og heiðarlegir mótmælendur þurfa ekki að fela aðgerðir sínar. (Vitneskja um og hræðsla við fjölmenn/hávær mótmæli getur haft mjög sterk áhrif.)

10) Munið að tjáningarfrelsinu fylgir ekki "rétturinn til að heyrast".

Þó við höfum rétt á því að hafa skoðanir og tjá þær með friðsamlegum hætti, þá getum við ekki neytt neinn til að hlusta á þær. Það þýðir að engum er skylt að fylgjast með mótmælum okkar eða sjá þau. Ef lögreglan "felur" mótmælin með því að leggja stórri rútu þvert fyrir framan hópinn, þá er ekki verið að takmarka tjáningarfrelsi eins eða neins. Það þýðir bara að lögreglan var í þessu tilfelli klókari en mótmælendurnir, en það er á ábyrgð okkar að vera klók á móti.

En umfram allt - ekki láta tilfinningarnar hlaupa með ykkur í gönur. Eldmóður og sterk sannfæring eru bráðnauðsynleg en þeim verður að fylgja ríflegt magn af skynsemi og rökfestu og fullkomin yfirvegun.

Lifið heil.


Svör frá lesendum (1)

  1. Herra Muzak: Mæli með:

    "leiðbeiningum Más fyrir mótmælendur... og reynslu Más af mótmælunum... mjög góð lesning..." Lesa meira

    30. mars 2003 kl. 18:45 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)