Mig syrgir - opið bréf óbreytts Íslendings.

Skrifað 18. júní 2002, kl. 09:48

Ég hef undanfarna daga tekið þátt í friðsamlegum mótmælum í tengslum við opinbera heimsókn forseta Kína, og á sjálfan þjóðhátíðardaginn, stóð ég þögla mótmælastöðu undir ræðunum á Austurvelli.

(Reykjavík 17. júní 2002)

Í dag er ég sorgmæddur, og ég ætla að segja ykkur hvers vegna.

- - -

Ég hef undanfarna daga tekið þátt í friðsamlegum mótmælum í tengslum við opinbera heimsókn forseta Kína, og nú síðast í morgun, á sjálfan þjóðhátíðardaginn, stóð ég og mótmælti með þöglum hætti undir ræðum forsætisráðherra og forseta Íslands á Austurvelli.

Ég er sorgmæddur því mótmælum fylgir svo mikið af neikvæðri orku. Mótmæli eru í eðli sínu neikvæð aðgerð sem beinist gegn einhverju sem misbýður samvisku manns.

Ég er sorgmæddur yfir því að seinustu daga hafa leiðinlegir hlutir átt sér stað.

Ég vildi óska að ég þyrfti ekki að mótmæla.

- - -

Í mótmælunum hef ég reynt að hegða mér eins vel og friðsamlega og kostur var á. Ég hvatti fólk í kringum mig til að mótmæla líka, en ég hvatti það líka til að mótmæla málefnalega og friðsamlega og ígrunda sannfæringu sína vandlega. Ég stóð fastur á minni sannfæringu og lét hana í ljós, en sýndi jafnframt lögreglumönnum og öðrum sem ég átti samskipti við fullkomna kurteisi og vinsamlegt viðmót. Ég gerði ekkert sem ég get skammast mín fyrir.

Það syrgir mig að þrátt fyrir þetta, þá er ég örugglega kominn á leynilegan svartan lista íslenskra yfirvalda yfir fólk með "óhentugar" skoðanir og "óæskilega" hegðun.

Það syrgir mig að það að ég skyldi dirfast að tjá skoðanir mínar í verki, mun líklega hamla ferðum mínu milli landa í framtíðinni, og þá skiptir það engu að ég braut engin lög og kom vel fyrir í hvítvetna.

Ég vildi óska að yfirvöld héldu ekki lista yfir fólk með samvisku.

- - -

Seinustu daga hefur fólk sem ég þekki, lent í því að lögreglumenn veittust að þeim fyrir það eitt að það hugðist mótmæla á stöðum þar sem til þeirra sæist. Lögreglumenn stigu markvisst út fyrir lögboðið valdsvið sitt með því að hamla ferðum fólks langt utan öryggisvæða, gera upptæk kröfuspjöld og svarta borða, og svifta menn frelsi tímabundið og hóta líkamsmeiðingum ef mótmælin héldu áfram. Í öllum tilfellum áttu þessar aðgerðir sér stað þar sem öruggt var að engin vitni væru að atburðinum - engir fjölmiðlar.

Ég varð sjálfur vitni að því þegar lögreglumenn fengu skipun um að hætta snarlega við fyrirhugaðar aðgerðir þegar yfirmaður þeirra, sem stóð álengdar, áttaði sig á að myndatökumenn fjölmiðlanna fylgdust náið með aðförunum.

Það syrgir mig að verða vitni af því að lögreglan starfi með aðferðum sem þola ekki dagsljós fjölmiðlanna.

Það syrgir mig að hagsmunir lögreglunnar og hagsmunir löghlýðinna borgara skuli ekki fara saman og að við skulum ekki geta ekki treyst lögreglunni.

Ég vildi óska þess að ég gæti litið á lögregluna sem vini mína.

- - -

Eins og flestir Íslendingar er ég alinn upp í þeirri trú að við búum í frjálsu og opnu landi. Ég hef viljað trúa því að hér ríkti skoðana- og málfrelsi, og að ráðamönnum þjóðarinnar sé skylt að þola smá mótbyr og sýna skoðunum almennings virðingu. Ég hef viljað trúa því að hér séu mannréttindi í heiðri höfð sem hvergi annars staðar, og hvar sem ég fari geti ég sagt frá því með nokkru stolti að ég sé Íslendingur.

Ég er sorgmæddur yfir því að ferða- og skoðanafrelsi erlends fólks er látið ráðast af þjóðerni þess og trúarsannfæringu, og lögbundið tjáningarfrelsi okkar íslendinga sé undirorpið persónulegri hentistefnu stjórmálamannanna okkar.

Ég er mest sorgmæddur yfir því að þjóðarstoltið mitt er í alvarlegum sárum.

Ég vildi óska þess að fyrirmennin sem bera ábyrgð á niðurlægingunni sæju sóma sinn í að biðja okkur, íslensku þjóðina, afsökunar.

- -

Þetta gerir mig sorgmæddan á þjóðhátíðardaginn.


Svör frá lesendum (1)

  1. Herra Muzak: Mæli með:

    "leiðbeiningum Más fyrir mótmælendur... og reynslu Más af mótmælunum... mjög góð lesning..." Lesa meira

    30. mars 2003 kl. 18:44 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)