1) Sjónvarpssiðferði 2) bumbumyndir

Skrifað 10. maí 2002, kl. 10:45

Það þarf tvo til að búa til viðtal, og það ætti að vera hlutverk stjórnenda Kastljóssins að sýna sóma sinn í að hafna viðtali við mann sem hefur augljóslega ekkert að segja sem getur ekki skaðað sjálfsmynd hans og sálarlíf fjölskyldu hans enn frekar.

To: maranomynet hjá yahoogroups.com

Ástkæru lesendur!

Mér varð hugsað eftir að horfa á Kastljósið í RÚV í gær:

Þegar formleg rannsókn hefur farið fram á gjörðum einstaklings sem alþjóð veit að hefur brotið af sér í starfi, þegar ákæruvaldið hefur séð ástæðu til að kæra viðkomandi fyrir 27 meint afbrot, og þegar fjallað hefur verið um málið samfellt í öllum fjölmiðlum og slúðurhornum landsins í margar vikur eða mánuði, og viðkomandi einstaklingur hefur hrakist úr þeim vinnum sem hann var í...

...er þá ekki líklegt að persónulegt líf þessa einstaklings sé í molum?
...er þá ekki líklegt að líðan fjölskyldu hans (konu og barna) sé bágborin?
...er þá ekki líklegt að viðkomandi sé nær vitstola af vanlíðan og örvinglan, á barmi taugaáfalls, og því næst ófær um að tjá sig um málið málefnalega og skynsamlega?

Ég veit allavega að þannig væri mitt ástand ef ég væri í sporum þessa sorglega einstaklings, og þarf enga vorkun til eða afneitun á misgjörðum hans. Bara mannleg samkennd.

Ég spyr mig þá: af hverju er þessi einstaklingur tekinn í stórt einkaviðtal í Kastljósinu (og Stöð 2)? Af hverju er verið að velta sér upp úr sálareymd þessa einstaklings? Hvað finnst umsjónarmönnum Kastljóssins svoleiðis viðtal bæta við þá umfjöllun sem áður hefur komið fram?

Ég veit að viðkomandi einstaklingur kom að fyrra bragði og óskaði eftir viðtali í öllum fjölmiðlum, en það kemur málinu ekkert við. Það eru einmitt eðlileg viðbrögð vitstola manns. Það þarf tvo til að búa til viðtal, og það ætti að vera hlutverk stjórnenda Kastljóssins að sýna sóma sinn í að hafna viðtali við mann sem hefur augljóslega ekkert að segja sem getur ekki skaðað sjálfsmynd hans og sálarlíf fjölskyldu hans enn frekar.

Mér leið allavega að horfa á þetta eins og svæsnasta ofbeldisklám. Ég stóð upp frá sjónvarpinu áður en viðtalinu lauk og fór að vaska upp.

Þetta var lélegt sjónvarpsefni.


Í öðrum og persónulegri fréttum er það helst að ég er búinn að setja inn fullt af myndum í myndaalbúmið. Þar ber hæst myndir af bumbunni og Stínu og meðgönguviðburðum:

Annars er allt gott að frétta af mér líka. :-)


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)