Vefsíður nýbúa á íslandi?
Ég veit næstum ekkert um nýbúa/innflytjendur á Íslandi og hvert sjónarhorn þeirra er á lífið, tilveruna, sjálfa sig, og aðra Íslendinga. Ég þekki næstum enga nýbúa og ég hef ekki orðið var við raddir þeirra á vefnum...
To: maranomynet
hjá yahoogroups.com
Ég nota vefinn til að fræðast um alls kyns hluti. T.d. hef ég lesið greinar og hugleiðingar um heimsmálin skrifaðar af fólki sem býr á staðnum og upplifir atburðina í kringum sig.
Gott dæmi er vefsíða Adams Curry, en hann býr í Hollandi og hefur verið að miðla fréttum af morðinu á stjórnmálamanninum Pim Fortuyn, gegnum heimasíðuna sína.
Adam miðlar okkur sínu sjónarhorni á það sem hann kallar "The Big Lie" í fréttaflutningi alþjóðlegra fréttastofa af morðinu og meintum fasískum og rasískum stjórnmálaskoðunum Fortuyns, en Adam segir það fjarri sanni.
Þannig getur verið áhugavert að lesa sjónarhorn Ísraela á deilunni fyrir botni miðjarðarhafs, og hvernig þeir meta rétt sinn til þess að brjóta andspyrnuhreyfingu Palestínumanna á bak aftur:
- Michael Bernstein - Suicide bombing in Netanya hotel
Palistínskt sjónarhorn á hvernig þeir upplifa sig afkróaða og kúgaða:
- Electronic Intifada - Live from Palestine
- E.I. - Historical Myths: Israel is a democracy
...og þeir sem reyna að vera hlutlausir og stilla til friðar:
- - -
Þetta fékk mig til að hugleiða hvað ég veit lítið um ákveðna hluti sem eru að gerast undir nefinu á mér hérna á Íslandi:
Ég veit næstum ekkert um nýbúa/innflytjendur á Íslandi og hvert sjónarhorn þeirra er á lífið, tilveruna, sjálfa sig, og aðra Íslendinga. Ég þekki næstum enga nýbúa og ég hef ekki orðið var við raddir þeirra á vefnum...
Eru til einhverjar vefsíður sem fjalla um málefni íslenskra nýbúa?
Þá er ég ekki að meina rasíska og mannfælna umfjöllun eins og má finna á vefsvæðinu framfarir.net, heldur vefsvæði sem fjalla um dagleg málefni nýbúa og helst þar sem þeirra raddir heyrast.
Snögg leit í Google skilaði mér m.a. eftirfarandi:
- Mannréttindasamtök innflytjenda á Íslandi og fjölskyldna þeirra
- Nýbúinn - fræðslumál innflytjenda
- Lokaathugasemdir Nefndar um afnám kynþáttamisréttis
- Áhrif trúar, menningar og arfleifðar á samskipti og meðferð innan heilbrigðisþjónustunnar.
Ekkert verulega bitastætt verður að segjast...
Það sem mig langar mest til að finna eru t.d. heimasíður og vefdagbækur barna og unglinga sem eru nýlega komin til landsins, eða eiga foreldra sem eru innflytjendur. Sérstaklega fólks af öðrum kynþætti en mínum.
Mig langar að vita hvort á vefnum leynist einhverstaðar samfélag tælenskra vefleiðrarahöfunda, eða hvort Tælendingafélagið eigi heimasíðu, eða eitthvað í þeim dúr?
Eða er kannski íslenski vefurinn bara skipaður bleiknefja sálum af íslenskum ættum? Ef svo, er þar þá stéttaskiptingu um að kenna? Kemur fjárhagsstaða (eða menntunarstig) vísitölunýbúans í veg fyrir að þeir nýti sér netið til að miðla sínum hugsunum, áhugamálum og kúltúr?
Eða gerir landamæraleysi netsins nýbúana ósýnilega ("on the internet noone knows you're a dog") og/eða eru þeir hluti af vefsamfélögum "í útlöndum", á einhverjum erlendum tungumálum? Praktísera þeir sinn (net)kúltúr þannig?
Ég er forvitinn, mig langar að kynnast nýbúum á netinu, því ég held að netið sé sniðugur vettvangur fyrir fólk og menningarheima að kynnast.
Ef ég þekkti einhvern nýbúa, þá mundi ég hvetja viðkomandi til að fá sér Blogger aðgang og skrifa vefdagbók.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (7)
Magnus Holmstad svarar:
var ad velta fyrir mer hvers vegna thu segir ad vefsidan Framfarir.net se rasisk, eg get omogulega verid sammala thvi sjonarmidi thar sem eg hef ekki fundid neitt a henni sem getur med rettu kallast rasiskt. Thad er t.d. hvergi minnst a kynthaetti a sidunni. Thætti gaman ad sja bent a daemi um rasisma a tessari sidu.
9. nóvember 2003 kl. 02:54 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Magnús. Rasisminn í ykkur er almennt nokkuð vel falinn, þið megið eiga það. Þið passið ykkur að nota hvergi orð eins og "kynþættir" og klæðið rasismann í ósköp falleg spariföt eins og hann verði eitthvað minna óviðkunnalegur fyrir vikið. Hann hins vegar verður öllum ljóst sem virkilega lesa skrif ykkar um málefni innflytjenda að þarna er á ferðinni ósköp dæmigerður rasistahópur af gamla skólanum.
Þú biður um dæmi, hér er eitt sem ég man eftir síðan í fyrra þegar ég skoðaði þessa síðu ykkar (sem hefur breyst mikið síðan):
Úr greininni "Staða innflytjendamála í Danmörku í stórum dráttum" (http://www.framfarir.net/greinar/020203.htm )
bq. Innflytjendum í Danmörku fjölgar hraðfara. [...] Eftir 60 ár gera danskir fræðimenn ráð fyrir að Danir verði orðnir minnihlutahópur í sínu eigin landi ef ekkert verði gert til að stöðva þá þróun. Þá verða múslimar orðnir um helmingur allra íbúa landsins en fjölgun meðal þeirra er hvað hröðust.
bq. Ástæðurnar fyrir mikilli fjölgun innflytjenda umfram Dani eru einkum tvær. Mikill straumur innflytjenda til Danmerkur á ári hverju og sú staðreynd að innflytjendur frá þriðja heims löndum eignast mun fleiri börn en Danir. Þannig eignast danskar konur að meðaltali 1,7 barn á ári á meðan að konur frá þriðja heims löndum eignast að meðaltali 3,3 börn, eða um tvöfalt fleiri.
Þýðing yfir á mannamál: "Svertingjarnir fjölga sér eins og kanínur eftir að þeir taka sér búsetu í Danmörku og þess vegna munu alvöru Danir (hvíti kynstofninn) vera orðnir minnihlutahópur í 'eigin' landi eftir 60 ár."
Bjakk.
Þetta er bara eitt ljótt dæmi af mörgum.
12. nóvember 2003 kl. 09:52 GMT | #
Már Örlygsson: Er Framfarir.net rasistafélag?
12. nóvember 2003 kl. 10:06 GMT | #
Óli svarar:
Án þess að vita í hvaða samhengi þessi tilvitnun er birt þá myndi ég ekki flokka hana sem rasisma. Það er staðreynd að innflytjendur (hef sérstaklega heyrt fjallað um innflytjendur frá Mið-Austurlöndum í þessu samhengi) eignast fleiri börn en þeir sem fyrir eru í löndum vestur Evrópu. Það hefur m.a. verið fjallað um þetta í því samhengi að þetta gæti verið lausn á þeim vanda sem vænt aldursdreifingarþróun vestrænna landa gæti komið þeim í.
Hins vegar virðist það vera svo að önnur kynslóð nýbúa aðlagar sig að "venjum" þess lands sem þeir hafa flutt til. Þ.e. barneignum fækkar þegar komið er á aðra kynslóð. Þannig að þetta virðist ekki vera varanleg lausn á væntum vanda vestrænna þjóða.
12. nóvember 2003 kl. 15:51 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Óli, en eftir 60 ár (og þar með nokkrar kynslóðir fæddar í landinu) er þessi hópur og niðjar þeirra þá enn "nýbúar" og "innflytjendur"?
Samkvæmt greininni þá eru það einmitt niðjarnir sem eru þarna flokkaðir sem önnur ástæðan fyrir því að alvöru "Danir" muni verða að minnihlutahópi.
12. nóvember 2003 kl. 18:07 GMT | #
Óli svarar:
Það er góður punktur. Þetta var svona meint meira sem fróðleiksmoli en eitthvað annað. Rasismi er náttúrulega fáránlegt fyrirbæri og nauðsynlegt að vinna gegn honum í ræðu og riti!
12. nóvember 2003 kl. 19:18 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Óli, þessi fróleiksmoli þinn var líka mjög góður punktur.
Þegar maður les greinarnar á þessum vef þá sér maður fljótt að hvert og eitt atriði virðist fullkomlega lógíst og illhrekjanlegt þegar það er skoðað eitt og sér úr samhengi við heildina.
Hins vegar er þessi allt að því sjúklegi fókus á mál sem snerta innflytjendur og hvernig þjóðfélag okkar (og nágrannaþjóðanna) væri ábyggilega miklu miklu betra án inflytjenda, og hvernig innflytjendur (sérstaklega múslimar) eru líklegri til að fremja glæpi o.s.frv. o.s.frv. það sem gerir að mínu mati boðskap síðunnar rasískan og mannfælinn.
Svo er það líka alþekkt staðreynd að öfgafullir haturshópar halda úti "hófsamari" áróðursstarfi til að veiða breiðari hóp fólks til fylgis við hlutmengi hugmyndakerfis síns, og benda svo (beint eða óbeint) á viðkomandi hóp til réttlætingar sínum öfgafyllri hugmyndum.
Þessi taktík er engan vegin einskorðuð við rasistahópa eða "þjóðernissinna", og viðgengst hjá fleiri tegundum aktivistajaðarhópa.
12. nóvember 2003 kl. 19:35 GMT | #