Að gefa út leyndarmál?

Skrifað 24. september 2001, kl. 02:02

Réttindabaseraða útgáfukerfið hans Bjarna veldur augljóslega vandræðum í sambandi við RSSið hans. Hann getur ekki sett leynifærslurnar í RSSið því þá eru þær ekki leynilegar lengur. Að öðrum kosti birtast leynifærslurnar í RSSinu þeim sem eru ekki útvaldir og innskráðir bara sem tóm síða, en það yrði fljótt ógeðslega pirrandi fyrir alla nema þá allra innvígðustu í leyniheim Bjarna.

Ég hef oftar en einu sinni velt fyrir mér hvort ég ætti að bæta svona leyndarmálaútgáfuvirkni inn í dagbókarkerfið mitt, en niðurstaðan sem ég kemst að er alltaf sú sama: Vefútgáfa og leyndarmál fara ekki saman. Það að blanda þessu tvennu saman er bæði flókið og loðið. Annað hvort gefur maður eitthvað út eða ekki. Það er bjánalegt að hálf-gefa eitthvað út.

[ Viðbót (kl. 13:30): Það kemur kannski ekki nægilega skýrt fram en þessar pælingar fjalla um hvernig ég upplifi svona leyndarmálaútgáfu í sambandi við það sem ég gef út og dagbókina mína... Nánar hér. ]

Varúð! Hugsanir...

Vefdagbækur eru hin fullkomna opnun. Vefurinn í heild er hin fullkomna opnun og frelsi. Leyndarmál eru ófrelsið í hnotskurn. Það að skrá og skjalfesta leyndarmál og dreifa þeim í stafrænu fjölriti er líka einhvernveginn eðli málsins ósamkvæmt.

Ennfremur: Fólki leiðast leyndarmál. Leyndarmál ala á tortryggni, öfund, forvitni, metingi og öðrum leiðinlegum löstum. Þau gera lífið flókið og neyða mann til að segja eitt við einn og annað við annan. "Opinber" leyndarmál eru sýnu verri.

Af ofangreindum ástæðum er ég hreinlega ekki viss um hvort ég vilji yfir höfuð fá aðgangsorð og smáköku hjá Bjarna. Mér líkar alla vega ágætlega tilhugsunin að sjá áfram bara opnu dagbókarfærslurnar hans og láta drenginn halda áfram að segja mér leyndarmálin sín í eigin persónu. :-)

Í mínum huga er það að trúa einhverjum fyrir leyndarmáli persónuleg aðgerð sem styrkir tilfinningabönd milli manna, en aftur á móti er vefútgáfa í eðli sínu köld og ópersónuleg aðgerð sem gefur ekkert nema innihald (content). (Innihaldið getur vissulega verið persónulegt, en aðgerðin er það ekki!)

Ég óska samt ástkærum Bjarna vini mínum til hamingju með þennan nýja fítus í dagbókinni hans og hlakka til að fá að fylgjast með því hvaða niðurstöðu þessi veffélagsfræðilega tilraun hans kemur til með að skila.


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)