Færslur mánudaginn 26. júní 2000

Kl. 14:05: Gamaldags útgáfuaðferðir á netöld 

Allir greina- og fréttamiðlar (les. vefrit) á íslenska netinu í dag eru gamaldags! Þetta á jafnt við um Mbl og Vísi, sem og Andríki og hrekkjusvínin (sem eru reyndar ekki komin í loftið enn).

Allir þessir aðilar blanda saman framleiðslu lesefnis og dreyfingu þess. Þetta eru tveir alls óskyldar aðgerðir sem eru best geymdar aðskildar. Enginn þeirra fattar að nýta sér að í dag er hægt að aðskilja gjörsamlega þessa tvo þætti. Það er ekki lengur tæknilega nausynlegt að blanda þessu tvennu saman. Þeir eru fangnir fuglar sem fatta ekki að búrið er opið!

Það er kannski helst Strikið og Heimstorg sem virðast fatta smá hvað netið snýst um.

Ég lagði til við Hrekkjusvínin fyrir nokkru síðan að þau ættu að venda við blaðinu og verða nútímadreifingarmiðill og láta aðra um að framleiða lesefnið.

Kannski er þetta bara í genunum á okkur - einkenni hins alíslenska sjálfsþurftarbónda. "Alvöru lesefnismiðlarar þurfa ekki að láta aðra skrifa fyrir sig - þeir skrifa sitt lesefni sko sjálfir".

Svona hugsunarháttur setur augljós takmörk á vöxt og hámarksgæði þess lesefnis sem fer í dreyfingu frá þeim aðlia.

Varanleg slóð

Kl. 13:56: Sífellt fjölgar vefritunum 

Sigfús "bloggari" er nú á leiðinni í loftið með enn eitt vefritið. Hmmm... er víst búinn að gera samning við Strik.is, sem er jú einmitt enn eitt vefritið. Sigfús er semsagt hættur við að vera Hrekkjusvín.

Af hverju einbeitir fólk sér ekki frekar að því að skrifa eitthvað gáfulegt. Það eru allir svo uppteknir af því að skipuleggja umbúðirnar að enginn tími gefst í innihaldið. Vefskrifarar eru svo uppteknir af aðgerðinni að skrifa á vefinn að ekkert annað kemst að.

Kommon fólk, byltingin mun ekki eiga sér stað fyrr en við byrjum að horfa upp úr skeiðinni sem við syndum í.

Við þurfum að læra að gleyma miðlinum. Við þurfum að læra að hætta að láta hann birtast í hverri setningu. Miðillinn er ekki markmiðið, hann er ekki umfjöllunarefnið. Hann er einfaldlega miðillinn - og sem slíkur á hann að hverfa úr augsýn og hætta að skyggja á útsýnið.

Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í júní 2000

júní 2000
SunMán ÞriMið FimFös Lau
        1. 2. 3.
4. 5. 6. 7. 8. 9. 10.
11. 12. 13. 14. 15. 16. 17.
18. 19. 20. 21. 22. 23. 24.
25. 26. 27. 28. 29. 30.  

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)