Miðnæturbrölt og röfl

Skrifað 25. maí 2000, kl. 02:38

Jæja, nú er enn einu sinni mið nótt og ég í vinnunni. Ég er eiginlega að deyja úr einhverju heimskulegu útlandaferðarstressi. Sofinn tæpa fimm tíma síðustu tvær nætur - samtals.

Ég var áðan loksins að að ganga frá ensku og dönsku útgáfum Þjóðlagahátíðarsíðunnar, en það er vefgerð á bæklingi sem ég tók að mér til að friða átthagataugarnar. Nú þarf ég bara að taka til á Siglufjarðar vefsvæðinu og síðu Síldarminjasafnsins - verkefni sem verða að bíða þartil í London.

Ég ætla að hafa þennan leiðara ummighverfan og líttspennandi leið-ara. Fólk með eitthvað líf: les ei meir.

Stafræn skemmtun (glæpsamlega sortin)

Núna hlusta ég á stolna mússík. Mmmmmm... NIN endurhljóðblöndun af Megadeath lagi er svaalt! *Skelli skolla-eyrum í takt*

Síðustu klukkutíma var ég annars að horfa með öðru auganu á nokkra fyrstu þættina af Futurama, nýju teiknimyndunum hans Matt Groening (lengi lifi stolið sjónvarpsefni á RealAudio formi). Þessir þættir eiga líklega að vera einhver "zany" blanda af Simpsons og Handbók vetrarbrautarputtaferðalangsins. Aðal vandamálið er að þetta verður ekkert mjög fyndið... Ég hugsa að ég hendi þessum 22 .RAM skrám og noti plássið bara undir fleiri MP3.

Helv. tölva

Ég prófaði áðan módemið sem ég fer með út á morgun (já eftir sléttan sólarhring verð ég í flugvél). Það hringdi og náði fínni tenginu við TAL-Internet í fyrstu tilraun. Ég er hins vegar ekki enn búinn að fá netforritin mín til að sjá netið út um þessa fínu módemtenginu. Þetta *verður* að lagast með hjálp mér fróðari manna á morgun. Maður lifir víst ekki á "ping" og "tracert" einum saman. - En dyb suk!

smuuu!

Núna er ég eiginlega bara að skrifa til að fresta því að fara heim. Ég veit ekki af hverju ég ætti að vilja fresta því... kannski af því að Stína er ekki heima. ...hmmm... ég talaði ekkert við hana í dag. Fyrsta skipti síðan hún fór út s.l. sunnudag! ...Reyndar fékk ég "elsk" SMS frá henni áðan - Takk Steeners!!

Reykjavíkurnætur

Hmmmm... meira röfl: Ég elska íslenskar sumarnætur. Ég mun sakna þeirra feitt í sumar. Núna fyrir utan skrifstofugluggann minn er fagurappelsínugulur bjarmi á norðurhimninum. Sól í risi. Dagur að vakna og ég á leið að sofa.

Á leiðinni heim í gærnótt gekk ég framúr róna"celebrity"inu honum Hring. Hann gerði sig líklegan til að vilja tala eitthvað við mig. Ég vildi ekki tala við hann.

Restina af leiðinni heim var ég samviskubitinn. Ég var líklega fyrsti maðurinn í tvær vikur sem ekki var æstur að tala við grey kallinn. Sá fyrsti til að vilja ekki baða sig í bjarma fjölmiðlafíf(i)lsins.

Hann er nútíma hirðfífl - Svona íslenskur, ónettengdur Mahir. Það er þess vegna sorglegt að hugsa til þess hvernig félags- og sálarlíf Hrings mun breytast þegar það verður ekki lengur kúl að "slömma" með honum niðríbæ um helgar.

Af hverju er fólk svona falskt? -- Ef bara svona sviðsljóssbað undirmáls-Jónsins skildi eitthvað eftir sig -- einhverja varanlega breytingu á þjóðarsálinni -- eitthvað annað en ímestalagi daufa minningu um enn eina skammtímatískubóluna.

Bless Ása

Annars...? Já, ég hitti Ásu vinkonu okkar Stínu í kvöld. Hún kom við hjá mér að ná í Go flugmiðann sem ég netkeypti fyrir hennar hönd. Hún dró mig ská yfir Austurstrætið til að borða Crépes á Kaffi París. Mmmm... matur. Kvaddi hana og Kára þar.

...

Á morgun þarf ég að muna að pakka niður farangri, taka til, hringja í Biddýju, og kaupa PC snúru fyrir stafrænu myndavélina mína...

Góða nótt!


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)