Bjór helgarinnar: Færeyskur Portari

Keypti mér kippu af Portaranum frá Föroya Bjór. (Portarar eru n.k. norðurlanda útgáfa af stout beer.) Þetta er "Myrkt öl við smakki av brendum malti og nógvari humlu. Vælhóskandi til sterkan mat."
Ég drakk slatta af Jósku porturunum sumarið 1997 þegar ég dvaldi í kaupmannahöfn og komst varanlega upp á bragðið þar. Sá færeyski stendur þeim dönsku ekkert að baki.
Þar sem þetta er eini portarinn sem færst í ríkinu um þessar mundir þá mæli ég eindregið með því að menn og konur skelli sér á a.m.k. eina kippu við tækifæri. Bjórinn er afbragðsgóður, og ekki sakar að um leið styrkjum við útflutningsiðnað hjá náfrænda okkar í færeyjum.
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum