Færslur föstudaginn 5. maí 2000

Kl. 18:46: Vondur matur á Thompsen 

Ég fór á Café Thompsen að borða í hádeginu með Stínu minni og vinnufélögunum. Við Stína pöntuðum súpu, steikarsamloku og franskar með. (Það þarf að borga sérstaklega fyrir franskar með matnum!!)

Það voru allir við borðið sammála um að súpan var sú versta við höfðum nokkurn tíman smakkað. Kokkurinn virtist hafa hrært hveiti út í vatn, hellt út í pottinn 1-2 dósum af niðusoðnum sperglum, og hitað hálfa leið að suðu. Voi-là súpa ojjbjakk!

Þegar loksins koma að steikarsamlokunni reyndist hún meira en lítið rýr. Þess utan var brauðið hart, og salatlúsin á diskinum virtist hafa verið þar síðan í gær eða fyrradag.

Hápunktur málsverðarins voru frönsku kartöflurnar - sem voru bara "allt í lagi".

Ég ræð öllum eindregið frá því að borða á Thompsen - a.m.k. ekki fyrr en þeir losa sig við kokkinn atarna! Ojjjbjakk!!

Varanleg slóð

Kl. 01:03: The Bufflog 

Kristján Björn Þórðarson grafíker og samstarfsmaður minn, hóf nýverið útgáfu á eigin vefleiðara bufflog.kristjan.org.

Það er hálfskammarlegt frá að segja, en ég var að kíkja í heimsókn til hans fyrst áðan.

Formið er grafískt. Líklega er hér um flottast framsetta íslenska vefleiðarann að ræða. Færslurnar eru á ensku, persónulegar, stuttar og einfaldar. Segja sitt engu að síður. Litlu "emotíkon" andlitin finnast mér skemmtileg.

Ég hlakka til að sjá hver þróunin verður. Áfram Kristján!

Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í maí 2000

maí 2000
SunMán ÞriMið FimFös Lau
  1. 2. 3. 4. 5. 6.
7. 8. 9. 10. 11. 12. 13.
14. 15. 16. 17. 18. 19. 20.
21. 22. 23. 24. 25. 26. 27.
28. 29. 30. 31.      

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)