Londonsumar 2000

Skrifað 4. maí 2000, kl. 23:31

Eins og Internetið hefur eflaust tekið eftir í skrifum mínum undanfarna daga, þá tala ég mikið um London.

Þannig er mál með vexti að fræga kærastan mín mun starfa sem aðstoðarmanneskja hjá (Vivienne) Westwood Studios í London í sumar.

Ég ákvað að ég nennti ekki að vera einn heima með kisunum í heila þrjá mánuði þannig að við höfum ákveðið að láta Biddýju sætu vinkonu okkar passa slotið í sumar á meðan við leikum okkur úttlandinu.

Ég held áfram að vinna fyrir GM þrátt fyrir að ég verði fjarstaddur. Það verður spennandi tilraun í fjarvinnslu bæði fyrir mig og fyrirtækið.

Breytt starfssvið

Til þess að reynsla mín og starfskraftar nýtist sem best yfir módemið, þá er hugmyndin að ég snúi mér frá daglegu harki í verkefnum og kóðapikki, og einbeiti mér að viðmótshönnun, faglegri ráðgjöf og (fjar)kennslu, og síðast en ekki síst almennu eftirliti með gæðum framleiðsluvörunnar (vefsvæðanna).

Ef allt gengur að óskum, þá verður þarna komin vinnutilhögun sem ég mun geta nýtt til að auðvelda mér vinnuna með skólanum næsta vetur.

En aftur um ráðgerða dvöl í Englandi

Við Stína erum búin að fá vilyrði fyrir leiguherbergi í íbúð í Battersea hverfinu (svæði SW11). Þetta er víst rétt hjá þeim stað þar sem Stína verður að vinna.

Leigan er skapleg (rétt rúml. 40.000 kr/mán.), maðurinn sem leigir virðist heill á geði, og það sem meira er; í herberginu er símatengill sem minn má nota!!!

Ferðaplönin fyrir sumarið eru:

  • Bjarni og Unnur í Montpelier, S-Frakklandi, miðjan júní.
  • Roskilde Festival, Danmörku, mánaðarmótin jún.-júl.
  • Vikuferð með lestum til Edinborgar, byrjun ágúst
  • Prag, Tékklandi, e. miðjan ágúst.

Svo mun mamma gamla verða í nánast næsta nágrenni (Cambridge, ca. 75km) hjá kallinum sínum Steve meira eða minna allt sumarið, þannig að við Stína munum líklega heimsækja þau fullt.

Það þarf vart að taka fram að við hlökkum bæði ýkt til sumarsins!


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)