Hugmynd fyrir Hrekkjusvín

Skrifað 4. maí 2000, kl. 21:31

Ég hef verið að hugsa undanfarið um væntanlega tilvist þjóðmálavefritsins Hrekkjusvín, og nú hefur mér loksins tekist að koma hugsunum mínum í orð.

Hrekkjusvín er verkefni sem vefleiðaravinirnir Björgvin og Geir lögðu af stað með s.l. vetur eftir að hafa uppgötvað gleðina sem felst í því að skrifa dagleg bréf til Internetsins. Hugmyndin var að safna saman góðu fólki (ég var einn þeirra sem varð fyrir valinu!!! :-) sem mundi leggja saman krafta sína og stofna til ópólitísks vefrits sem keppti við Heimstorg, Múrinn, Vefþjóðviljann og Frelsi.is.

Mér líkar vel við þá drengi og dáist af framtakssemi þeirra, en ég ræð bara ekki við mig að spurja: þurfum við meira af því sama?

Þessi spurning mín vaknar af tveimur megin ástæðum:

Bjögvin og félagar virðast skemmta sér konunglega við að skrifa sínu persónulegu vefleiðara - hver í sínu horni. Athyglissýkin og eignarþörfin fær hámarks útrás, og allir virðast þeir meira en nógu uppteknir fyrir svo að þeir fari ekki að bæta því við að skrifa reglulegar ritgerðir fyrir Hrekkjusvín.

Aukin heldur finnst mér vefritasniðið ekkert spennandi. Það er fremur kalt og ópersónulegt, og lyktar einhvernveginn af miðstýrðri gamaldags pappírtímaritaútgáfu. Ég er hreinlega ekki viss um að Múrinn eða Vefþjóðviljinn sem fyrirbæri, séu þess virði við þau sé keppt.

Hvað er þá til ráða fyrir fyrirbærið Hrekkjusvín?

Ég legg til að Björgvin og félagar skoði þann möguleika að setja upp þjónustu fyrir vefleiðarahöfunda og bjóði þeim (a.m.k. völdum hópi) að setja á fót persónulega vefleiðara á léni Hrekkjusvína (t.d. www.hrekkjusvin.is/jonjonsson). Ég hef tekið eftir að þeir hafa byrjað á þessu í smáum stíl, og mér finnst það sniðug þróun. Meira af því!

Hvert verður þá andlit hrekkjusvínanna?

Ég hef lengi haft þá skoðun að okkur íslendinga vanti framúrstefnulega netfréttamiðlara, og ég held að hrekkjusvínin séu í aðstöðu til að ráða nokkra bót á því.

Með fremur lítilli fyrirhöfn gætu hrekkjusvínin skapað sérsniðinn glugga á íslenskt þjóðlíf (e. vertical portal).

Slóðin www.hrekkjusvin.is mundi setja mann í samband við úrval af því besta sem er að gerast á öllum hinum vefritunum og einnig (þetta "og einnig" er mikilvægt) við rjómann af þeim skrifum sem verða til á persónulegu vefleiðurunum.

Ritstjórar Hrekkjusvínsins hjálpuðust þannig við að tína til, flokka og vísa á hlutlægt valdar gæða-greinar, sem snertu íslenskt þjóðlíf. Vinnuálagið ætti að vera skaplegt fyrir ritstjórana, og greinarhöfundar fengju fullkomið frelsi til að stjórna sinni sköpun í sínu horni.

Niðurstaðan gæti þannig orðið ferskt framlag til íslenskrar netmenningar, og um leið eitthvað sem gæti reynst gagnlegt textaþyrstum íslenskum netnördum.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)