Útsýni á Hofsósi

Skrifað 2. maí 2000, kl. 09:30

Til að komast til Siglufjarðar flugum við á Sauðárkrók, og á leiðinni þaðan stoppuðum við örstutt á Hofsósi.

Þar hefur mikil uppbygging átt sér stað í tengslum við ferðamannaiðnaðinn. Í kvosinni er að myndast skemmtilegt samsafn uppgerðra gamalla húsa sem hýsa m.a. Vesturfarasetrið, auk íbúðarhúsa sem eru mjög dæmigerð fyrir íslenska smábæi og sjávarþorp.

Við Stína skoðuðum söfnin utanfrá og tókum fullt af myndum.

Samsett mynd af safnhúsunum í kvosinni:

Safnahúsin í kvosinni

Það var bara eitthvað svo heillandi við þessa gömlu steinsteiptu brú yfir ána:

Gamla brúin yfir ána

Líkt og á Siglufirði þá virðast Hofsósbúar óhræddir við að mála húsin sín í ljósum pastellitum. Mjög heillandi:

Íbúðarhúsin í kvosinni

Stína alltaf jafn heillandi ...Í rauðum lopakjól. :-)

Stína í lopakjól


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)