Kominn heim úr sveitasælunni
Við komum heim úr sveitinni í gærkvöldi. Gott að vera á Sigló, en það er líka gott að vera aftur heima. Ágætt að vera ónettengdur í nokkra daga.
Veðrið á Siglufirði var afbragðsfínt. Sól, sunnanvindur og 14-15 gráður bæði laugardag og sunnudag. Smá þungskýjað mánudag, en hlýtt.
Siglufjörður breytist lítið. Pabbi breytist lítið. Fólkið breytist lítið. Eina sem breytist er að allt eldist smávegis á milli þess sem maður kemur og gömlu skólafélagarnir bæta við einu og einu barni í súpuna sem fyrir var.
Það virðast hinsvegar vera engin takmörk fyrir því hvað lítil fjögurra ára kríli sem eiga að vera systkini manns geta stækkað á stuttum tíma!!
Á Árósi (Kríustöðum) hefur ekkert breyst. Skúrarnir með torfþökunum eru enn á sínum stað:

Sól og gleði. Hrafn heilsar gestunum. Hildur í felum:

Mánudagsmorgni var eytt í fjöruferð. Sandur skeljar og ímyndunarafl úreldast víst aldrei sem leiktæki. Hildur og Hrafn í fjörunni:

Úti á landi virkar allt helmingi hægara og afslappaðra en hérna í borginni. Ég held að það sé ekki bara ég - borgin er stressuð.
Það sem við gerðum var fyrst og fremst að borða góðan mat og sofa góðan nætursvefn og smá lúra yfir daginn. Þess á milli gengum við ýmist á fjöll eða um bæinn og tókum myndir. Stína kláraði u.þ.b. milljón filmur með gömlu vasamyndavélinni sinni. Svo hjálpuðum við pabba gamla við að undirbúa hreiðurstæði fyrir æðarkollurnar á grandanum.
Stína er alveg rosalega skotin í Siglufirði. Þetta gerðist bara alveg án þess að ég hjálpaði henni nokkuð!
Þar sem nýjasta áhugamálið hans pabba er að eignast og gera upp gömul hús í bænum, þá beindist athygli okkar sjálfkrafa að öllum litlu (og stundum stóru) gömlu húsunum í bænum þar sem við löbbuðum um og skoðuðum.
Það kviknuðu þarna milljón spennandi hugmyndir um að eignast hús til að búa í hluta ársins, eða til að geta alið upp (milljón trilljón) börnin okkar langt frá ruglinu í Reykjavík.com.
Að göngunni lokinni þá vorum við búin að eigna okkur hálfan bæinn - þann helminginn sem pabbi var ekki búinn að eignast :-).
Þessir tveir og hálfur dagur sem við vorum gestir í Siglufirði voru afar fínir og afslappandi. Þessi ferð mun gera sitt til að tryggja að við fáum heimþrá í haust og komum heim frá London.
Kettirnir (Lufsa og Pussa) virðast ekki hafa saknað okkar mikið í fjarverunni, enda stríðaldar af góðu (kattar)vinum okkar Siggu og Kiddýju. Kisurnar ultu malandi á móti okkur yfir þröskuldinn...
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum