Netbankastríð í fullum gangi
Það er nú meira hvað allir urðu æstir þegar Netbankinn fór í loftið. Það er búið að brjótast út fjölmiðla og auglýsingastríð milli bankanna þar sem hver gapir uppí annan með fallegum og skemmtilega orðuðum heilsíðuauglýsingum.
Allar þessar rándýru auglýsingar hljóta að snarbæta þjónustuna sem ég fæ í heimabankanum og hækka vextina á bankabókinni minni - eða hvað?
Í stað þess að belgja út fagurrauðann gúlinn framan í hvorn annan eins og graðir hanar, af hverju einbeita bankarisaeðlurnar sér ekki frekar að því að lagfæra þjónustuna í netútibúunum sem þeir auglýsa svona mikið?
Eina raunhæfa leiðin fyrir bankana til að heilla viðskiptavini sína (og annara) er að:
- Bæta aðgengi og viðmót í netútibúunum.
- Létta síðurnar til að auka hraðann.
- Auka við og bæta þjónustuna.
- Láta virka a.m.k. þá (SMS)þjónustu sem þeir auglýsa hástöfum.
Vegna alls þessa hamagangs á netbankamarkaðnum og þess að Netbankavefurinn virðist vera ennþá í smíðum, hef ég ákveðið að gefa mér lengri tíma í að skrifa vefúttektina á Netbankavefnum. Vonandi tekst mér þá að taka dæmi sem eiga ekki bara við um Netbankann.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.