Færslur mánudaginn 27. september 1999

Kl. 02:00: Netbankastríð í fullum gangi 

Það er nú meira hvað allir urðu æstir þegar Netbankinn fór í loftið. Það er búið að brjótast út fjölmiðla og auglýsingastríð milli bankanna þar sem hver gapir uppí annan með fallegum og skemmtilega orðuðum heilsíðuauglýsingum.

Allar þessar rándýru auglýsingar hljóta að snarbæta þjónustuna sem ég fæ í heimabankanum og hækka vextina á bankabókinni minni - eða hvað?

Í stað þess að belgja út fagurrauðann gúlinn framan í hvorn annan eins og graðir hanar, af hverju einbeita bankarisaeðlurnar sér ekki frekar að því að lagfæra þjónustuna í netútibúunum sem þeir auglýsa svona mikið?

Eina raunhæfa leiðin fyrir bankana til að heilla viðskiptavini sína (og annara) er að:

  • Bæta aðgengi og viðmót í netútibúunum.
  • Létta síðurnar til að auka hraðann.
  • Auka við og bæta þjónustuna.
  • Láta virka a.m.k. þá (SMS)þjónustu sem þeir auglýsa hástöfum.

Vegna alls þessa hamagangs á netbankamarkaðnum og þess að Netbankavefurinn virðist vera ennþá í smíðum, hef ég ákveðið að gefa mér lengri tíma í að skrifa vefúttektina á Netbankavefnum. Vonandi tekst mér þá að taka dæmi sem eiga ekki bara við um Netbankann.

Sendu þitt svar | Varanleg slóð

Kl. 01:00: Fyndin Auglýsingastofa á netinu 

Aðstandendur auglýsingastofunnar Elvis virðast fatta hvað auglýsingabransinn er hallærislegur. Síðan er öskrandi snillt frá <body> til </body> Megi Elvis fá fullt af skemmtilegum og kúnnum!

Þess má geta að lénið er í eigu auglýsingastofunnar Mátturinn og dýrðin.

Sendu þitt svar | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í september 1999

september 1999
SunMán ÞriMið FimFös Lau
      1. 2. 3. 4.
5. 6. 7. 8. 9. 10. 11.
12. 13. 14. 15. 16. 17. 18.
19. 20. 21. 22. 23. 24. 25.
26. 27. 28. 29. 30.    

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)