Árs leyfi frá Skólanum
Í gær fór ég á fund deildarstjóra myndlistardeildar Listaháskóla Íslands og sótti um árs leyfi "til skipulags sjálfsnáms og sjálfskoðunar". Hann tók vel í það, og ég var þar með kominn í frí. Niðurstaðan er sú að ég vinn áfram hjá Gæðamiðlun í vetur. Gleði
Þetta er hugmynd sem ég var búinn að vera að melta í allt sumar. Um það leyti sem skólastarfið byrjaði ákvað ég svo að láta verða af þessu.
Myndlistarnám er alvarlegt nám sem, ef vel á að vera, krefst geysimikils sjálfsaga og nákvæmrar sjálfsrýni. Mig lagnar að taka mér þann tíma sem ég þarf til að geta lokið því með sóma.
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum