Úttekt á vef Íslensku Vefstofunnar

Skrifað 16. september 1999, kl. 02:00

Það hefur verið í bígerð hjá mér í nokkurn tíma að byrja að skrifa vefpistla. Gera stuttar úttektir á vefsíðum íslenskra og erlendra fyrirtækja og stofnana. Til að koma mér af stað ákvað ég að ráðast á garðinn þar sem hann var lægstur og gera úttekt á vef Íslensku Vefstofunnar.

Vefhönnunar- og veflausnafyrirtækið Íslenska vefstofan (http://stofan.is), er eitt af þeim stærri í bransanum á íslandi. Fyrirtækið, sem skipti nýlega um nafn og ímynd, setti á dögunum í loftið eigin vefsíðu. Vefsíðan og vankantar hennar vöktu greinilega athygli hjá fleirum en mér, því í dag kom í ljós að hún hafði verið tekin niður og í staðinn reist "Under Construction" skilti.

Fyrir þá sem misstu af upplifuninni, þá var þarna á ferðinni stór (í Kb), gulur og áferðarfallegur bæklingur. Hann gaf helst til kynna að starfsmenn Vefstofunnar kynnu Photoshop og Javascript en afar fátt annað. Vefurin var að öllu leyti grafískur og innihélt engan texta. Textamyndirnar skrunuðu sjálfkrafa frá einni málsgrein til annarar án þess að notandinn fengi neinu um það ráðið. Það aleina sem hægt var að smella á voru nokkrir vandlega faldir tenglar á heimasíður viðskiptavina Vefstofunnar.

Það má náttúrulega ekki dæma menn of hart fyrir svona mistök. Sú ákvörðun Vefstofunnar að taka niður heilan vef og byrja upp á nýtt, er þeim til sóma. Hún sýnir að þarna er á ferðinni fyrirtæki sem áttar sig á eigin handvömm og ætlar sér að gera betur næst... ...eða hvað?

Þetta er í raun afar hláleg framganga hjá fyrirtæki sem gefur sig út fyrir fagmannleg vinnubrögð, og varpar skugga á íslenska vefhönnunarmarkaðinn í heild sinni! Hún sýnir ennfremur að góð vísa er aldrei of oft kveðin:

  • Vefhönnuður er ekki það sama og grafískur hönnuður. Vefhönnun byggist á því að þekkja og skilja eðli miðilsins til hlítar. Vefhönnun snýst um gagnvirkni og innbyrðis afstöðu upplýsinga í margvíðu huglægu rými og það að greina og sjá fyrir þarfir notandans. Vefhönnun snýst ekki um útlit eða áferð.
  • Góð útlitshönnun tekur alltaf mið af eðli viðfangsefnisins. Það má ekki ætla mönnum sérfróðum um prenthönnun að teikna fyrir vefinn. Þekking þeirra og útsjónarsemi miðast við eðli pappírsins og bleksins, kostnaðarþátta við prentun og umbrot, og meðfærileika og afstöðu efniskennds hlutar í rúmi. Ekkert af þessu nýtist við útlitshönnun vefsíðna.
  • Það má aldrei vanmeta mikilvægi verkstjórnar. Samofið eftirlit og gæðastjórnun frá upphafi er einn af mikilvægustu þáttunum í verkferlinu. Með hæfan verkefnastjóra innanborðs má fullyrða að vefur Íslensku vefstofunnar hefði aldrei komist í loftið. (Ath. vefurinn stóð óáreittur hátt í heila viku!)
  • Á netinu ertu alltaf "í beinni". Villur og kæruleysisleg vinnubrögð eru engu minna alvarleg á netinu en utan þess. Það er kannski auðvelt er að "henda" einhverju á netið og lesa það yfir seinna, en hinu má ekki gleyma að aukinn hraði í samskiptum og útgáfu hefur gert fallöxina þeim mun beittari.

Niðurstaða: Svona gerir maður ekki!

Uppfært 20. sept. 1999: Smábreytingar og lagfæringar framkvæmdar


Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)