Pælingar og hugmyndir um list
Skólinn er nýbyrjaður og þarmeð sá árstími þegar maður pælir hvað fastast í því hvað maður er að gera í Listaháskóla(tm). Ég er núna að reyna að búa til lista í huganum yfir alla þá þætti sem grípa huga minn hvað mest, og hvernig mig langar að vinna úr þeim.
Það hefur alltaf heillað mig að búa til eitthvað úr engu. Gefa hlutum nýjan tilgang og nýtt líf. Það lumar í mér lítill and-neytandi. Ég vil endurvinna og endurnýta það drasl sem fyrir er í stað þess að framleiða nýtt drasl. Sturgeon's Law: 90% of everything is crap.
Mér finnst gaman að improvisera óhefðbundnar lausnir á vonlausum vandamálum. Redda einhverju í algjöru hallæri - án "réttu" hjálpartækjanna. . Nota límband þar sem maður mundi yfirleitt nota nagla og lím. Um leið að kalla fram eitthvað ófyrirséð. Stilla saman óvenjulegum (ó)samstæðum án ígrundaðrar hugsunar. Sjá það fyndna í útkomunni - og svo helst að nota hana í eitthvað praktískt, bara til að storka þeim sem þola ekki að sjá það gerast.
Mér finnst hugmyndin um verkið stærra höfundinum áhugaverð. Hún er eitthvað sem laust niður í huga minn fyrir skemmstu útfrá vangaveltum um Linux og Prix Ars Electronica. Rosalega mikið af nútímalist snýst um persónu listamannsins og flestir listamenn skapa verk til þess að moka undir sjálfa sig og lyfta sér hærra frá jörðu. Þegar verkið verður stærra höfundinum þá skyggir það á hann og persónu hans. Verkið heldur áfram að verða til og lifa eftir að höfundurinn hættir afskiptum af því. Verkið verður áhrifaþáttur og kennileiti í mannlegu samfélagi á eigin forsendum. Nokkuð sem pýramídunum tekst að vissu leyti, en Mónu Lísu alls ekki. Linux er dæmi um hugverk sem stærra höfundinum. Það á í raun ekki lengur neinn höfund - en lifir samt!
Mér þykir upplýsinga- og samskiptatæknin afar spennandi - og þá sérstaklega þau samfélagslegu, pólitísku, og heimspekilegu áhrif sem hún hefur í för með sér. Straumlínulöguð samskipti á milli manna óháð staðsetningu. Samtenging heila og hugsana. Hið stafræna er hið huglæga og óefniskennda í hnotskurn. Stafræn tónlist og stafrænar myndir eru röð tákna. Skýrt afmarkaðar lýsingar á raunveruleikanum. Það sem mér finnst svo æðislegt við þetta allt saman er hversu hverfull rafræni stafræni heimurinn er. Hann er svo óefniskenndur og viðkvæmur.
Allt þetta er mjög spennandi og kallar á meiri hugsun og meiri skrif...
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.