Kl. 02:00: Farsímar eru æði!
Ég var að hringja í konuna mína rétt í þessu svona til að heyra í henni hljóðið.
Eftir nokkuð margar hringingar svarar hún loksins, röddin hálf kæfð af einhverju sem líktist viftuhljóði. Ég segi hæ og ræði við hana um daginn og veginn, hvernig henni hafi gengið í skólanum og soleis, og allan tíman hljómar hún hálf skringilega. Loksins spyr hún mig "Gettu hvar ég er núna?"
...Hvað áttu við með "í ljósum"?! spyr ég. ... Jamm sú var víst raunin. hún hafði keypt sér tíma í ljósum og sat með ljósabekkinn skíðlogandi fyrir aftan sig, reynandi eftir fremsta megni að losna við mig úr símanum svo hún gæti haldið áfram að liggja í bláa ljósinu!
Mórallinn í sögunni: Fólk á að slökkva á farsímanum sínum þegar það vill ekki láta trufla sig, og það er alltaf gaman að tala við sætar allsberar svitastorknar stelpur í síma.
Sendu þitt svar |
Varanleg slóð
Kl. 01:00: Aldamótin 2000 eða 2001?
Ég var spurður í pósti í dag, "Byrjar næsta öld um áramótin 2000 eða 2001? Vænti svars og raka strax."
Svar mitt var náttúrulega hárrétt og nákvæmt. Til að vera samkvæmur sjálfum mér birti ég svarið Íslendingum öllum til hagsbóta og yndisauka.
Ef þetta er spurning um hvenær á að halda partíið, þá er rétta svarið "bæði". Engin ástæða að láta svona prýðis góða ástæðu til að halda tvö risastór aldamótapartí framhjá sér fara.
Mín tillaga er að þeir sem veðja á 2001 haldi sitt partí þá, og hinir haldi sitt partí næstu áramót. Fyrrnefndi hópurinn kemur þá bara í partíið hjá 2000 fólkinu og öfugt!
OK?
Spurningar?
Snitturáðleggingar?
.
Hugmyndin um 2001 sem aldamót er byggð á vel meintri, en skammsýnni, stærðfræðilegri nákvæmni í bland við ást á Frelsaranum. Velt er upp spurningunni hvenær fæddist Jésú? Fékk það ár númerið núll eða einn? - Og flestir svara "einn" (Án þess þó að fyrir því séu neinar beinharðar heimildir eða sannanir!!). Vandamálið við svona stærðfræðilega útreikninga er hinsvegar það að viðmiðsgildin þurfa að vera a.m.k. jafnnákvæm og svarið. Útkoma útreikninga verður aldrei nákvæmari en reiknieiningarnar sem notaðar voru. Það að bendla árþúsundamótin við árið 2001 gengur útfrá því að Jésú hafi fæðst akkúrat árið 1. Hinsvegar hefur verið margsinnis sýnt framá að miðaldakjánarnir sem bjuggu til tímatalið okkar höfðu ekki hugmynd um hvenær Jésú fæddist og misreiknuðu sig um a.m.k. 2 ár - ef ekki 7! Þetta þýðir að ef fólk vill halda uppá 2000. afmæli Jésú þá missti það af tækifærinu því afmælið var í síðastalagi í fyrra!
Þegar bæði stærðfræðilegar og sagnfræðilegar forsendur okkar eru svona þverbrotnar þá stendur eiginlega ekkert eftir nema fegurðarskynið eitt og hefðin. (Nema fólk sé þeim mun þrjóskara, eða partífíknara, og þá er það bara gott og vel.)
Fegurðarskynið segir manni auðvitað að notast við sléttutöluna (þegar allar fjórar tölur ártalsins breytast og tölvukerfin hrynja og flugvélarnar hrapa og David Bowie heldur tvo áramótatónleika sitthvoru megin við daglínu.) Á það má benda að engum dettur í hug að líta á 51 árs afmæli sem stórafmæli - 50 er nefnilega "falleg" tala sem er gaman að horfa á - og svo gengur 10 uppí henni (fimm umgangar af puttum).
En eins og áður sagði - Partí! Partí!
Sendu þitt svar |
Varanleg slóð
Nýleg svör frá lesendum