Guðinn Appolló og myndskreyting grísks drykkjarkers - Appolló á drykkjarkerinu (calyx-krater) frá Orvétó, eftir "Níóbíða" málarann.

Skrifað 1. maí 1997, kl. 00:00

Upprunalega unnið sem ritgerð í Listasögu fornámsdeildar Myndlista- og Handíðaskólans, vorið 1997.

Tónninn er heldur kæruleysislegur og uppbygging ritgerðarinnar ekki upp á marga fiska, en staðreyndirnar eiga að vera réttar.

Appolló var eitt af mörgum framhjáhaldsbörnum Seifs. Seifur gat Appolló og tvíburasystur hans Artemis með gyðjunni Letó. Heru líkaði að vonum illa, og fangaði fæðingargyðjuna Iliþíu, sem olli því að Letó gat ekki fætt. Að lokum lét þó Hera undan þrýstingi hinna goðanna og sleppti Iliþíu og þau systkin litu dagsins ljós.

Ein af hetjudáðum Appollós var að uppfylla spádóm með því að drepa drekann Pýþón í Delfí. Eftir það varð Appolló hinn nýi guð í Delfí og þar með gaf Véfréttin út hans skipanir.

Appolló var fyrst og fremst spádómsguð og sjáandi, on sem slíkur var hann verndari tónlistar og skáldskapar, og leiðtogi Músanna :) (the Muses). Sem spá- og seiðguð verndar hann lækningastarfsemi hvers konar. Hann stjórnaði á Parnassusfjalli, og er einnig tengdur hirðingjum, sólinni, og ást á fegurðinni. Sjálfur er hann jafnan sýndur sem ungur og fagur maður, oft með boga og örvar.

Níóbe nokkur (mennsk), dóttir Tantalusar átti sex syni og sex dætur með Amfíóni syni Seifs. Hún montaði sig opinberlega yfir því hversu miklu flottari hún væri en Letó þarsem sú ætti bara tvo króga. Appolló og Artemis (börn Letóar) refsuðu Níóbe fyrir að voga sér að segja sig æðri gyðju, með því að Appolló drap alla syni hennar og Artemis allar dætur hennar. Níóbe ku víst hafa orðið svo sorgmædd yfir öllu þessu að hún breyttist í stein.

Rauðmyndaserían á drykkjarkerinu góða frá Orvétó lýsir akkúrat þessari goðsögn, og sýnir Appolló og Artemis ganga hlið við hlið á milli barna Níóbe og skjóta þau hvert af öðru með bogum sínum. Kerið er gert einhverntíman á árunum 455-450 fkr. Það er í heildina um um 60 cm á hæð en myndflöturinn er hinsvegar ekki nema um 38 cm á hæð. Bæði fyrir ofan og neðan myndflötinn eru bönd með klassísku geometrísku blómaskrauti í rauðmyndastíl gömlu snillinganna.

Persónurnar eru dreyfðar um myndflötinn, og hafa ekki neinn sameiginlegann flöt til að standa á. Það er líklega tilraun málarans til að fá fram fjarvídd og sýna suma aftar en aðra. Aftur á móti er lítil sem engin "overlapping" persóna sjáanleg, en það aftur gerir fjarvíddina svoldið naive. Á móti því vinnur hins vegar það að skipulega raðaðir og snyrtilegir landslags og umhverfisþættir tvinnast svolítið saman við persónurnar, eins og kemur fram síðar.

Málarinn reynir að sýna styttingu í líkamsformum, t.d. þeirra sem liggja, en öll andlit eru annað hvort beint framan á eða í prófíl. Það er öll andlitin nema eitt, en einn son Níóbe sem fallið hefur til jarðar teiknar málarinn ekki bara hálf hulinn bak við stein (sem eitt og sér var fremur sjaldgæft) heldur snýr hann allur, og andlitið með, hálfvegis til manns út úr vasanum.

Þarna mun víst vera á ferðinni fyrsta tilraun grísks keramíkmálara til að sýna þá styttingu sem kemur fram í hálfsnúnu andliti, og tekst bara merkilega vel.

Þetta höfðu ekki einu sinni hinir gömlu snillingar og frumkvöðlar Euþymikes og Eufronios hætt sér útí. Málarinn sem sýndi þessa dirfsku og tekist það svona ágætlega, hefur greinilega ekki verið vissari um eigið ágæti en svo að hann merkti sér ekki verkið. Þess vegna hefur hann verið kenndur við börn Níóbe, Níóbíðin (Niobids).

Til gamans má líka velta því fyrir sér þeim möguleika að grey maðurinn hafi bara gleymt að merkja sér verkið í hita leiksins...

Heimildir

  1. Gardner's Art Through the Ages (10th edtition)
  2. http://www.pantheon.org/mythica/topics/greek/
  3. Listasaga Fjölva (1.bindi)
  4. Hitt og þetta smálegt á Internetinu.

 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)